Innlent

Utanríkisráðuneytið neitar styrk

Mannréttindaskrifstofu Íslands, sem neitað var um styrk frá utanríkisráðuneytinu þar sem veita átti fé til mannréttindamála á alþjóðavettvangi, er enn neitað um fjárframlög. Ýmis innlend verkefni hafa þó hlotið náð fyrir augum ráðuneytisins. Ráðuneytið hyggst ekki styrkja skrifstofuna á þessu ári þó enn virðist vera til fjármagn.

Það vakti talsverða athygli fyrir ári þegar þau tíðindi bárust að Mannréttindaskrifstofa Íslands fengi ekki tæplega átta milljóna fjárframlag af fjárlögum til rekstrar eins og verið hafði. Þess í stað ákvað ríkisstjórnin að utanríkisráðuneyti og dómsmálaráðuneyti myndu úthluta milljónunum átta til mannréttindamála og var forsvarsmönnum mannréttindaskrifstofu bent á að sækja um fjármagn til ráðuneytana. Dómsmálaráðuneytið veitti tveimur og hálfri milljón til verkefna skrifstofunnar fyrr á þessu ári, en utanríkisráðuneytið ákvað frekar að verja sínum hluta fjárins í mannréttindamál á erlendri grundu, nánar til tekið í stöðu mannréttindafulltrúa hjá ÖSE.

Guðrún Dögg Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri Mannréttindaskrifstofu Íslands, segir forsvarsmenn skrifstofunnar hafa gengið á eftir því við ráðuneytið hvort ekki ætti að auglýsa styrki úr fjárheimildum þess til mannréttindamála. Sú auglýsing birtist aldrei en skrifstofan sendi þó umsókn og ítrekun á henni um mitt árið. Engin svör bárust hins vegar.

Guðrún segir að eftir að fregnir bárust af því að ekki hafi verið ráðið í stöðuna hjá ÖSE þá hafi hún sett sig í samband við Utanríkisráðuneytið enn einu sinni og óskað svara við því hvernig ráðstafa ætti því fé sem til stóð að færi í stöðuna hjá ÖSE.

Stuttu áður en svar barst svo við styrkbeiðni Mannréttindaskrifstofunnar nú nýverið fengu aðstandendur hennar fregnir af því að þrátt fyrir að búið væri að gefa það út að milljónirnar fjórar, sem áður fóru til skrifstofunnar en yfirlýst hafði verið að ættu að fara í að styrkja mannréttindi á erlendri grund, hefði verið afgreiddur styrkur til innlendra málefna.

Óformlegt svar ráðuneytisins, sem að sögn Guðrúnar barst svo fyrir síðustu helgi, sagði svo að Mannréttindaskrifstofan fengi ekki styrk á þessu ári.

Björg Thorarensen forstöðumaður Mannréttindastofnunar Háskóla Íslands staðfesti við fréttastofu í dag að stofnunin hefði fengið úthlutað samtals 700 þúsund krónum frá utanríkisráðuneyti til tveggja aðskildra verkefna. Annars vegar til bókaútgáfu um Mannréttindadómstól Evrópu og hins vegar vegna námskeiðshalds fyrir lögmenn um gildi dóma mannréttindadómstólsins.

NFS hefur síðustu daga ítrekað lagt skilaboð fyrir ráðuneytisstjóra, ráðherra og aðstoðarmann hans í utanríkisráðuneytinu vegna málsins. Þeim hefur ekki verið svarað þrátt fyrir ítrekanir.

Að sögn Magnúsar Stefánssonar, formanns fjárlaganefndar Alþingis, liggur enn ekki fyrir hvort endurskoða eigi fyrirkomulag um fjárframlög til Mannréttindaskrifstofunnar fyrir næsta ár, en forsvarsmenn skrifstofunnar hafa átt fundi með fjárlaganefnd þar sem þess var krafist að skrifstofan færi aftur á fjárlög.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×