Innlent

Ein véla CIA stödd hérlendis

Ein af flutningavélum leyniþjónustunnar CIA er á Reykjavíkurflugvelli. Samkvæmt upplýsingum fréttastofu hafa vélar Devon Holding & Leasing komið við hér á landi í það minnsta níu sinnum, og þær eru tíðir gestir á þeim flugvöllum sem vitað er að vélar á vegum CIA millilenda gjarnan á Möltu og Azor-eyjum en líka í Austur-Evrópu og Afganistan.

New York Times segir fyrirtækið eitt sjö fyrirtækja sem flytja fanga og meinta hryðjuverkamenn fyrir CIA til staða þar sem hægt er að beita óhefðbundnum yfirheyrslum, sem þýðir að fangarnir eru pyntaðir. Síðast var vél á vegum fyrirtækisins hér í byrjun október, og fór þá til Búdapest og síðar Amman. Rannsóknar hefur verið krafist á ferðum vélarinnar um ungverska lofthelgi. Raunar hafa opinberar rannsóknir verið teknar upp víðar í Evrópu á ferðum CIA-véla, á Norðurlöndum er verið að kanna málin, á Ítalíu og Spáni sömuleiðis, og þýsk yfirvöld kanna hvort það hafi verið lögbrot að fangavélarnar millilentu þar í landi.

Hvergi þar sem ferðir vélanna hafa verið kannaðar virðist þó sem þær hafi lent jafnoft og hér á landi, miðað við fréttaflutning erlendra fjölmiðla. Þýska dagblaðið Taz kallar Ísland raunar miðstöð flugs CIA.

Hjá sendiráði Bandaríkjanna komu menn af fjöllum þegar fréttastofan leitaði upplýsinga, en bandarísk yfirvöld hafa enn sem komið er engu svarað fyrirspurnum íslenskra stjórnvalda um flugferðir fyrirtækjanna sem starfa fyrir og eru sögð í eigu CIA.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×