Innlent

Yfirvöld lofa bót og betrun í málefnum innflytjenda

Lögregla slekkur eld í bíl í Lyon í gærkvöld.
Lögregla slekkur eld í bíl í Lyon í gærkvöld. MYND/AP

Lögreglan í París býr sig nú undir helgina en talið er að framvinda óeirðanna næstu tvo sólarhringa muni gefa vísbendingu um þróun mála. Yfirvöld í Frakklandi lofa bót og betrun í málefnum ungra innflytjenda og vonast þannig til að lægja óánægjuölduna.

Óeirðirnar í Frakklandi hafa nú staðið í tvær vikur, en nokkuð hefur dregið úr þeim undanfarna daga, sérstaklega í París. Þetta er meðal annars rakið til þess að sveitastjórnir hafa margar beitt útgöngubanni eftir að ríkisstjórnin gaf þeim heimild til þess. Engu að síður var kveikt í 463 bifreiðum í nótt og 201 hantekinn vegna óláta.

Lögregla vonar að enn dragi úr óeirðunum um helgina, en Frakkar minnast þess að samið var um vopnahlé í fyrri heimsstyrjöldinni þennan dag árið 1918 en hann markaði endalok heimsstyrjaldarinnar. Eru margar stofnanir og fyrirtæki lokuð af þeim sökum í dag. Hluti íbúa í þeim úthverfum Parísar sem verst hafa orðið úti í óeirðunum hyggst í dag standa fyrir friðargöngu í miðborg Parísar og hvetja þannig til þess að endi verði bundinn á uppþotin.

Lögregla í París leggur áherslu á að tryggja svæði þar sem ungimenni hafa að jafnaði safnast saman um helgar en hún óttast að óeirðirnar magnist á ný þar sem hún hefur haft spurnir af því að óeirðaseggir skipuleggi uppþot með aðstoð SMS-skeyta og skilaboða á Netinu. Hefur lögreglustjórinn í París bannað fólki að kaupa bensín á litla brúsa til þess að reyna að koma í veg fyrir að óeirðaseggir búi til eldsprengjur, svokallað Mólotov-kokkteila.

Jacques Chirac, forseti Frakklands, sagði í gær að yfirvöld yrðu að taka á vandanum í úthverfum borga landsins þar sem innflytjendur eru í meirihluta. Atvinnuleysi þar er mikið meðal ungmenna og er talið að óánægja með aðgerðaleysi stjórnvalda í þeim málum hafi brotist fram í óeirðunum. Fjármálaráðherra Frakklands segist á næstunni leggja fram tillögur um það hvernig fjölga megi störfum í þessum hverfum.

Þá berast þær fregnir að dómstólar í norðausturhluta Parísar hafi var undan að rétta í málum óeirðarseggja. Um það bil sextíu mál tengd óeirðunum koma fyrir dómstóla á hverjum degi. Nicolas Sarkozy, innanríkisráðherra Frakklands, hefur látið hafa eftir sér að þeir óeirðaseggir sem ekki hafi franskan ríkisborgararétt og verði dæmdir fyrir aðild sína að uppþotunum verði sendir til síns heima en mannréttindahópar vara við því að of mikill flýtir í réttarhöldum geti aukið á reiði óeirðarseggjanna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×