Innlent

Allrahanda kærir Vegagerðina

Rútufyrirtækið Allrahanda hefur kært Vegagerðina þar sem ekki var samið við fyrirtækið um sérleyfisakstur á milli Reykjavíkur og Keflavíkurflugvallar. Gunnar Gunnarsson aðstoðarvegamálastjóri segir Allrahanda ekki hafa uppfyllt skilmála og skilyrði útboðs um aksturinn og þess vegna hafi ekki verið samið við fyrirtækið, þrátt fyrir að eiga hagstæðasta tilboðið. Þess í stað var samið við Kynnisferðir sem vildu fá greitt með akstrinum. Stjórnendur Allrahanda saka Vegagerðina um að hafa sniðgengið lög um opinber innkaup og hafa kært niðurstöðuna til kærunefndar útboðsmála. Aðstoðarvegamálastjóri segist ekki vilja ræða málið við fjölmiðla og gefi því ekki upp hvaða skilmálar eða skilyrði það séu sem Allrahanda uppfyllir ekki. Heiðar Hrafn Eiríksson, framkvæmdastjóri Allrahanda, segir þetta verða til þess að ríkið þurfi að greiða sjötíu og sex milljónum króna meira fyrir aksturinn en ef samið hefði verið við þá. Aðspurður kveðst hann ekki vita hvaða skilmálar það séu sem Vegagerðin segir þá ekki uppfylla. Allrahanda lagði kæruna inn í fyrradag en Kærunefnd útboðsmála hefur fimmtán daga til að fara yfir málið.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×