Innlent

Öryrkjar mótmæla kjararýrnun

Öryrkjabandalag Íslands fagnar þeirri ákvörðun stjórnvalda að leggja til að hluta þeirra fjármuna sem fengust fyrir Landsímann skuli varið til uppbyggingar úrræða fyrir geðfatlaða. Á hinn bóginn sé á engan hátt hægt að fallast á að sú efling feli í sér um leið kjararýrnum lífeyrisþega eins og kemur fram í nýframlögðu fjárlagafrumvarpi fyrir næsta ár. Þetta kemur fram í ályktun aðalfundar Öryrkjabandalagsins sem samþykkt var í gærkvöldi. Félagið krefst þess að ríkisvaldið hverfi af þeirri braut að skerða markvisst kjör fatlaðra og lífeyrisþega, og nefnir í því samhengi að að undanförnu hafi kjör vegna bifreiðakaupa hreyfihamlaðra verið skert, hlutdeild neytenda í lyfjakostnaði verið aukin, gjöld fyrir hvers kyns þjálfun verið hækkuð og nú sé uppbót á elli- og örorkulífeyri vegna reksturs bifreiðar í uppnámi. Bandalagið bendir einnig á að fyrirhugaður sparnaður á bótum samkvæmt lögum um félagslega aðstoð samræmist ekki þeim mikla tekjuafgangi sem áætlaður er af ríkissjóði. Á meðan dregið sé úr sköttum á hátekjufólk séu álögur á fatlaða auknar og bein tekjurýrnun boðuð. Öryrkjabandalagið telur að brýna nauðsyn beri til að endurskoða nú þegar lög um almannatryggingar. Einfalda þurfi ýmsa þætti laganna og tryggja afkomuöryggi lífeyrisþega. Þá skorar bandalagið á stjórnvöld að fresta fyrirhugaðri sameiningu Sjónstöðvar Íslands og Talmeinastöðvarinnar þar sem þær þjóni einstaklingum með afar ólíkar fatlanir og lítið sameiginlegt þegar komi að meðferð og úrræðum. Að lokum skorar bandalagið á ríkisstjórn Íslands að standa við samkomulagið frá mars 2003 þar sem Öryrkjabandalaginu var lofað umtalsverðri kjarabót en stjórnin hefur svikið að mati félagsins. Annars verði málaferli ekki umflúin.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×