Öryrkjar mótmæla kjararýrnun 20. október 2005 00:01
Öryrkjabandalag Íslands fagnar þeirri ákvörðun stjórnvalda að leggja til að hluta þeirra fjármuna sem fengust fyrir Landsímann skuli varið til uppbyggingar úrræða fyrir geðfatlaða. Á hinn bóginn sé á engan hátt hægt að fallast á að sú efling feli í sér um leið kjararýrnum lífeyrisþega eins og kemur fram í nýframlögðu fjárlagafrumvarpi fyrir næsta ár. Þetta kemur fram í ályktun aðalfundar Öryrkjabandalagsins sem samþykkt var í gærkvöldi. Félagið krefst þess að ríkisvaldið hverfi af þeirri braut að skerða markvisst kjör fatlaðra og lífeyrisþega, og nefnir í því samhengi að að undanförnu hafi kjör vegna bifreiðakaupa hreyfihamlaðra verið skert, hlutdeild neytenda í lyfjakostnaði verið aukin, gjöld fyrir hvers kyns þjálfun verið hækkuð og nú sé uppbót á elli- og örorkulífeyri vegna reksturs bifreiðar í uppnámi. Bandalagið bendir einnig á að fyrirhugaður sparnaður á bótum samkvæmt lögum um félagslega aðstoð samræmist ekki þeim mikla tekjuafgangi sem áætlaður er af ríkissjóði. Á meðan dregið sé úr sköttum á hátekjufólk séu álögur á fatlaða auknar og bein tekjurýrnun boðuð. Öryrkjabandalagið telur að brýna nauðsyn beri til að endurskoða nú þegar lög um almannatryggingar. Einfalda þurfi ýmsa þætti laganna og tryggja afkomuöryggi lífeyrisþega. Þá skorar bandalagið á stjórnvöld að fresta fyrirhugaðri sameiningu Sjónstöðvar Íslands og Talmeinastöðvarinnar þar sem þær þjóni einstaklingum með afar ólíkar fatlanir og lítið sameiginlegt þegar komi að meðferð og úrræðum. Að lokum skorar bandalagið á ríkisstjórn Íslands að standa við samkomulagið frá mars 2003 þar sem Öryrkjabandalaginu var lofað umtalsverðri kjarabót en stjórnin hefur svikið að mati félagsins. Annars verði málaferli ekki umflúin.
Fréttir Innlent Mest lesið Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza Innlent Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Innlent Inga vildi alls ekki svara spurningum fréttamanns Innlent Kristrún tilbúin í aðgerðir Innlent „Vitum ekki hundrað prósent hvað er í þessu“ Innlent Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun Innlent „Ég væri að ljúga ef ég segði að það væri tilviljun“ Innlent „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Innlent Alvarlega slasaður eftir fall af svölum Innlent Uppsagnir hjá Klettabæ Innlent Fleiri fréttir Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni „Dapurlegt pólitískt útspil hjá oddvita Samfylkingar“ Ekki búið að finna nýjan lögreglustjóra hátt í hálfu ári síðar Alvarlega slasaður eftir fall af svölum Árekstur við Hamraborg Engin aðstoð við próftöku og litaðar númeraplötur Uppsagnir hjá Klettabæ Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Kristrún tilbúin í aðgerðir Inga vildi alls ekki svara spurningum fréttamanns Ákærður fyrir að nauðga sofandi og ölvaðri dóttur sinni Væntingar um útspil tengt gjaldahækkunum Neituðu sök við þingfestingu Straumsvíkurmálsins Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun „Ég væri að ljúga ef ég segði að það væri tilviljun“ Sniðganga geti verið túlkuð sem yfirlýsing ríkisstjórnarinnar Fjórir í gæsluvarðhald eftir hraðsendingu frá Þýskalandi Ekkert svigrúm í tengslum við kjarasamninga og tvísýnt með framhaldið Lét ákærða vita af andlátinu: „Hann var í miklu uppnámi“ „Vitum ekki hundrað prósent hvað er í þessu“ Flutningabíll valt á Þverárfjallsvegi sem er lokaður Lægðin grynnist í dag en von á annarri Bíl ekið á ljósastaur Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Gerðu stutt hlé á sprengingunum en séu enn á áætlun og verði búin í lok október Eldgos áfram líklegasta sviðsmyndin en óljóst hvenær það yrði ESA geti ekki beðið endalaust Valgerður réttir fram sáttahönd Vill að Daði vísi til þess sem hún á að hafa sagt Sjá meira