Presti greint frá kynferðisofbeldi 23. október 2005 15:04
Þeim einstaklingum sem sagt hafa presti sínum frá því að þeir hafi orðið fyrir kynferðisofbeldi sem börn hefur farið fjölgandi á síðustu fimm árum. Þetta segir séra Gunnþór Ingason, sóknarprestur í Hafnarfjarðarkirkju. Hann segir að bæði sé um að ræða karla og konur, sem greini frá þessu í viðtölum við sig. Fjölskylda Thelmu Ásdísardóttur, sem sagt hefur frá ógnvekjandi misnotkun föðurins á henni og systrum hennar um árabil, var á þeim tíma sem þeir atburðir gerðust, búsett í Hafnarfjarðarsókn. Gunnþór segir að mál systranna hafi aldrei borið fyrir sín eyru fyrr en nú að það er gert opinbert. Engin þeirra fermdist að því er fram hefur komið í fjölmiðlum.„Þetta gerðist fyrir allmörgum árum. Þessar systur hafa augljóslega ekki farið sömu leið og jafnaldrar þeirra," segir séra Gunnþór. „Þær hafa þó ekki borið utan á sér hvernig komið væri fyrir þeim. Þær hafa greinilega haft sitthvað til brunns að bera og hafa komist áfram í lífinu þótt kringumstæður þeirra væru slæmar og átakanlegar." Séra Gunnþór segir að hafa beri í huga, að áður fyrr hafi hugmyndir um kynferðisofbeldi barna verið mun fjarlægari heldur en nú er. Samfélagið hafi verið lokaðra og talið hafi verið að svona nokkuð myndi vart þrífast í okkar ágæta samfélagi. Erfitt hafi verið fyrir fólk að horfast í augu við svo ónotalegan veruleika. „En nú þegar margt er á hverfanda hveli og sitthvað þyrlast upp í sviptivindum samtíðar, viðmið og fleira, þá er farið að gæta að dekkri hlutum tilverunnar og huldum skúmaskotum sem hafa alltaf verið til einhvers staðar, hvort sem þau eru fleiri núna heldur en áður var," segir séra Gunnþór. „Ég gæti samt best trúað því að margt í okkar samfélagi sé nú látið viðgangast sem andmælt var fyrrum. Þolmörk samfélagsins eru meiri nú heldur en áður var en menn verða að gera upp við sig hvar þeir vilja standa í málum sem varða velferð og samfélagsheill og andmæla óhæfuverkum." Spurður hvaða ráð hann gefi fólki sem segi frá kynferðisofbeldi sem það hafi orðið fyrir á yngri árum segist séra Gunnþór hvetja það til að tjá sig um það, horfast í augu við það, reyna að viðurkenna tilveru sína og láta ekki örvæntingu, biturleika eða skammartilfinningu ráða ferðinni. Reyna jafnframt að finna gildi í guðstrúnni og glæða þrátt fyrir allt lífsvirðinguna í vitundinni um háleitan tilgang lífsins.
Fréttir Innlent Mest lesið Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza Innlent Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Innlent Inga vildi alls ekki svara spurningum fréttamanns Innlent „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Innlent Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Innlent „Ég er ógeðslega reiður“ Innlent Kristrún tilbúin í aðgerðir Innlent Valgerður réttir fram sáttahönd Innlent „Vitum ekki hundrað prósent hvað er í þessu“ Innlent Gerðu stutt hlé á sprengingunum en séu enn á áætlun og verði búin í lok október Innlent Fleiri fréttir Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni „Dapurlegt pólitískt útspil hjá oddvita Samfylkingar“ Ekki búið að finna nýjan lögreglustjóra hátt í hálfu ári síðar Alvarlega slasaður eftir fall af svölum Árekstur við Hamraborg Engin aðstoð við próftöku og litaðar númeraplötur Uppsagnir hjá Klettabæ Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Kristrún tilbúin í aðgerðir Inga vildi alls ekki svara spurningum fréttamanns Ákærður fyrir að nauðga sofandi og ölvaðri dóttur sinni Væntingar um útspil tengt gjaldahækkunum Neituðu sök við þingfestingu Straumsvíkurmálsins Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun „Ég væri að ljúga ef ég segði að það væri tilviljun“ Sniðganga geti verið túlkuð sem yfirlýsing ríkisstjórnarinnar Fjórir í gæsluvarðhald eftir hraðsendingu frá Þýskalandi Ekkert svigrúm í tengslum við kjarasamninga og tvísýnt með framhaldið Lét ákærða vita af andlátinu: „Hann var í miklu uppnámi“ „Vitum ekki hundrað prósent hvað er í þessu“ Flutningabíll valt á Þverárfjallsvegi sem er lokaður Lægðin grynnist í dag en von á annarri Bíl ekið á ljósastaur Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Gerðu stutt hlé á sprengingunum en séu enn á áætlun og verði búin í lok október Eldgos áfram líklegasta sviðsmyndin en óljóst hvenær það yrði Sjá meira