Innlent

Samningar náðust um endurreisn

Samningar hafa náðst milli KEA, fjárfestingafélagsins Sjafnar og Sandblásturs og málmhúðunar um að félögin leiti leiða til að endurreisa rekstur Slippstöðvarinnar á Akureyri með samningum við þrotabú og aðra eigendur tækja og húsnæðis. Skiptastjóri búsins segir erfitt að segja til um hvenær samningar náist.  Benedikt Sigurðarson, stjórnarformaður KEA, staðfesti þetta í morgun. Hann segir að reynt verði að hefja starfsemi í Slippstöðinni á allra næstu dögum. Hann segir ljóst að til að byrja með muni eingöngu hluti þeirra hundrað starfsmanna, sem sagt var upp hjá fyrirtækinu í byrjun vikunnar, fá endurráðningu hjá nýjum eigendum. Verkefnastaða sé ekki ljós ennþá og því þurfi að hnýta marga lausa enda áður en hægt verður að huga að því að endurráða alla starfsmennina hundrað. Benedikt útilokar þó ekki að svo verði. Kristján B Garðarsson, fyrrverandi forstjóri Kísiliðjunnar, hefur að sögn Benedikts verið fenginn til að leiða verkefnið fyrir hönd fjárfestanna þriggja. Samningar hafa einnig náðst milli hópsins og Hafnarsamlags Norðurlands um afnot nýrra eigenda Slippstöðvarinnar að upptökumannvirkjum stöðvarinnar. Sigmundur Guðmundsson, skiptastjóri þrotabússins, segir viðræður þegar hafnar um væntanlega sölu. Hann segir þó að þar sem stærstur hluti eignanna sé eign Stáltaks - húsnæði, lóðaréttindi og stærri tæki - sé það nýrra eigenda að semja við Stáltak líka. Að sögn Kristjáns B. Garðarssonar, sem leiðir nú viðræðurnar fyrir hönd hugsanlegra nýrra eigenda, eru viðræður við eigendur og þrotabú nú í fullum gangi og ekki hægt að segja með neinni vissu hvenær niðurstaða fáist í þær viðræður. Þorsteinn Haraldsson, fyrrum trúnaðarmaður starfsmanna Slippstöðvarinnar, segir lögmenn stéttarfélaganna hafa komið fram kröfum vegna vangreiddra launa þrotabúsins en ábyrgðasjóður launa muni væntanlega koma til með að greiða þau laun. Starfsmenn telja sig eiga jafnvirði 20 milljóna inni hjá þrotabúinu sem Þorsteinn segir að jafngildi þriggja vikna, og upp í mánaðarlaunum, hjá hverjum starfsmanni.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×