Innlent

Mæta til vinnu að nýju?

Svo gæti farið að um eitt hundruð starfsmenn Slippstöðvarinnar, sem á þriðjudag bættust á atvinnuleysisskrá á Akureyri, geti mætt til vinnu hjá nýrri endurreistri Slippstöð á næstu dögum. Fréttablaðið greinir frá því í dag að þrjú fyrirtæki og fjárfestingafélög á Akureyri séu að leggja lokahönd á samkomulag um yfirtöku á rekstri Slippstöðvarinnar. Það er KEA, fjárfestingafélagið Sjöfn auk fyrirtækisins Sandblásturs og málmhúðunar sem hyggjast taka yfir rekstur þrotabússins og leigja upptökumannvirki stöðvarinnar af Hafnarsamlagi Norðurlands. Fréttablaðið hefur eftir Halldóri Jóhannssyni, framkvæmdastjóra KEA, að félögin þrjú hafi fundað sleitulaust í allan gærdag vegna málsins og vonir hafi staðið til að samningar næðust undir kvöld í gær. Slippstöðin var lýst gjaldþrota á mánudag eftir að fyrrum forsvarsmenn þess höfðu óskað gjaldþrots á föstudag fyrir viku. Starfsmenn stöðvarinnar eiga enn inni 20 milljónir króna í laun hjá þrotabúinu og hafa lögmenn stéttarfélaga gert kröfur í búið fyrir hönd starfsmanna.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×