Innlent

Líklegt að Slippstöðin hætti

Líklegt er talið að Slippstöðin hætti starfsemi og um eitt hundrað starfsmenn fyrirtækisins verði sendir heim eftir að gjaldþrotabeiðni var samþykkt í héraðsdómi Norðurlands eystra í dag. Skipaður skiptastjóri þrotabúss Slippstöðvarinnar fundar með starfsmönnum klukkan þrjú í dag. Stjórnarformaður KEA segir félagið hafa kannað þátttöku í endurreisn Slippstöðvarinnar. Engin niðurstaða sé þó komin í þær pælingar. Sigmundur Guðmundsson, skiptastjóri þrotabúsins, sagði í samtali við fréttastofu nú eftir hádegið að líklega yrði starfsemi hætt að hluta eða öllu leyti meðan fyrirtækið er til gjaldþrotaskipta. Sigmundur segir enn ekki ljóst hversu háar kröfur séu á þrotabúið en kröfuhafar í búið hafa nú tvo mánuði til að lýsa kröfum í þrotabúið. Sigmundur segir lítið nýtt hafa komið fram á fundi hans með fyrrum forsvarsmönnum Slippstöðvarinnar í morgun. Trúnaðarmaður starfsmanna, Þorsteinn Haraldsson, segir starfsmenn vilja fá svör við því á fundinum seinna í dag hvort sú staðreynd að 40 milljóna greiðsla hafi borist fyrirtækinu um það leyti sem óskað var eftir gjaldþrotaskiptum eigi ekki að fara í að greiða þær 20 milljónir sem starfsmenn eiga inni hjá þrotabúinu. Annars verði starfsmenn að líkindum að gera sjálfir kröfur í þrotabúið. Þorsteinn segir starfsfólk slegið yfir tíðindunum enda hafi margir vonast eftir því að hægt yrði að halda starfseminni áfram meðan nýir aðilar tækju yfir reksturinn. Nafn KEA hefur verið nefnt í því sambandi en í samtali við fréttastofu sagði Benedikt Sigurðarson, stjórnarformaður KEA, að slíkar viðræður hefðu farið fram milli KEA og fleiri aðila í bænum. Engin niðurstaða væri þó kominn í þær viðræður. Benedikt sagði að meðan skiptastjóri færi með mál fyrirtækisins yrði hugsanleg endurreisn Slippstöðvarinnar þó að bíða eitthvað.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×