Innlent

Starfsmenn bíða eftir niðurstöðu

Starfsmenn Slippstöðvarinnar bíða þess nú að gjaldþrotabeiðni fyrirtækisins verði tekinn til skoðunar. Til stóð að beiðnin yrði tekin fyrir nú klukkan 10. Að sögn trúnaðarmanns starfsmanna, Þorsteins Haraldssonar, eru starfsmenn nú á vinnustaðnum og bíða þeir þess að skýrist með gjaldþrotabeiðni fyrirtækisins. Starfsmenn eru ekki við vinnu en á staðnum að sögn Þorsteins. Hann segir vangoldin laun starfsmanna nú í kringum 20 milljónir með launatengdum gjöldum en stuttu eftir að gjaldþrotabeiðni var lögð fram á föstudag segir Þorsteinn að Landsvirkjun hafi innt af hendi 40 milljón króna greiðslu sem stærsti kröfuhafinn í fyrirtækið, Landsbankinn, sitji nú á og telji sig í fullum rétti til að gera. Trúnaðarmaðurinn segir starfsmenn grama yfir því að sú greiðsla hafi ekki verið nýtt til að greiða starfsmönnum laun síðustu vikna og því muni starfsmenn leita réttar síns gagnvart Landsbankanum.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×