Innlent

Nýr lyfjagagnagrunnur landlæknis

Landlæknisembættið hefur komist að því að allt að tíu læknar hafi ávísað vanabindandi lyfjum til eins og sama fíkils, að sögn Matthíasar Halldórssonar aðstoðarlandlæknis. Nýi lyfjagagnagrunnurinn, sem notaður hefur verið hjá embættinu síðan um áramót, reynist vel til að rekja dæmi af þessum toga. Matthías leggur áherslu á að gagnagrunnurinn sé einungis notaður til að fylgjast með því að lyfjaávísanir séu með eðlilegum hætti. "Við sjáum ef fólk er að ganga á milli margra lækna til að fá lyfseðil," segir Matthías. "Við sendum upplýsingar til læknanna um það og mælumst þá til þess að það sé einungis einn sem sjái um ávísun á vanabindandi efni til viðkomandi einstaklings. Ekki er alltaf hægt að skrúfa fyrir það." Matthías segir að oft bregði læknunum við þegar þeir fái að vita um einstaklinga sem hafa farið á milli lækna og verða sér úti um lyfseðla. Embættið óski eftir skýringum frá þeim á því hvers vegna þeir séu svo háir í útskriftum á ákveðin lyf. Í mörgum tilvikum fáist einhverjar skýringar. "Sumir læknar verða oft mjög undrandi því þeim hafði ekki dottið í hug að viðkomandi leitaði til annarra lækna í sömu erindum," segir Matthías. Spurður um fjölda fíkla sem fari milli lækna til að fá ávísun á lyf kveður hann embættið ekki hafa tekið það saman. Starfsmenn þess fari mjög varlega í sakirnar. Einungis sé um að ræða mjög afbrigðileg tilvik sem athugasemdir séu gerðar við. "Þær höfum við gert í allmörgum tilvikum. Það eru nokkrir tugir manna sem hafa einhvern veginn ánetjast ávanabindandi lyfjum og leita síðan til margra lækna til að verða sér úti um þau. Þeir halda því þá leyndu að þeir séu að fara til fleiri en eins læknis."



Fleiri fréttir

Sjá meira


×