Innlent

Undrast ákvörðun forsætisnefndar

"Okkur þykir það afar undarlegt að forsætisnefnd Alþingis skuli ekki hafa fundið einn einasta sagnfræðing til að vinna þetta verk," segir Guðni Thorlacius Jóhannesson, formaður Sagnfræðingafélags Íslands, um þá ákvörðun nefndarinnar að fela Þorsteini Pálssyni umsjón með ritun sögu þingræðis á Íslandi. "Við höfum verið að ráða ráðum okkar og munum gera betur grein fyrir afstöðu okkar en eins og svo oft áður þá snýst þetta ekki um einstaklinga og viljum við engan veginn kasta rýrð á Þorstein," bætir hann við. Félagið mun væntanlega senda frá sér ályktun fundarins í dag. Forsætisnefnd Alþingis skipaði einnig þau Helga Skúla Kjartansson, prófessor í sagnfræði við Kennaraháskóla Íslands, og Ragnhildi Helgadóttur, lektor í stjórnskipunarrétti við Háskólann í Reykjavík, í ritnefnd vegna þessa verkefnis. Bókin verður gefin út í tilefni þess að öld er liðin frá upphafi þingræðis hér á landi.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×