Innlent

Síðasta áfangi Nesjavallavirkjunar

Í morgun var síðasti áfangi Nesjavallavirkjunar vígður. Fysti áfangi virkjunarinnar var gangsettur árið 1990, en með tilkomu hennar hófst nýr kafli í hitaveitusögu höfuðborgarsvæðisins og var þar með úr sögunni skortur á heitu vatni sem hafði verið yfir vofandi um árabil. Virkjunin getur nú ein og sér séð um rúmlega 30 prósent af varmaþörf höfuðborgarsvæðisins og um 60 prósent af rafmagnsþörf þess. Þrjátíu megawatta gufuhverfill var víður í dag og þar með er flutningsgeta frá Nesjavöllum fullnýtt, bæði er strengurinn sem flytur rafmagnið fullnýttur og einnig er flutningsgeta heitavatnsæðarinnar sem liggur meðfram Nesjavallaveginum þegar fullnýtt.  Næstu áfangar í aukinni orkuframleiðslu hjá Orkuveitunni verða á Hellisheiði en þar er nú að rísa nýtt orkuver sem mun bæði framleiða rafmagn og hita.  



Fleiri fréttir

Sjá meira


×