Samkomulag um að sækja tækin 30. september 2005 00:01
Landsvirkjun hafði náð samkomulagi við stjórnendur Slippstöðvarinnar á Akureyri um að sækja tæki sem nota átti við Kárahnjúka og fengið fyrirtæki til að sækja þau, segir Sigurður Arnalds, upplýsingafulltrúi Landsvirkjunar á Kárahnjúkum. Hann segir Landsvirkjun hafa haft milligöngu fyrir þýska fyrirtækið DSD Stahlbau GmbH sem sér um byggingu aðfallsganga virkjunarinnar. Starfsmenn Slippstöðvarinnar fengu fregnir af því að peningur ætti að koma inn í fyrirtækið sem væri óvíst að ætti að nota í launagreiðslur og lögðu því stöðina undir sig. Sigurður segir að hluti af samkomulaginu við Slippstöðina hafi snúið að fjármálum en vildi ekkert tjá sig um hvort í því fælist að greiðslur bærust inn á reikninga fyrirtækisins. Um hundrað manns eiga inni laun hjá Slippstöðinni á Akureyri og vita ekki hvort eða hvenær þeir fá útborgað. Starfsmennirnir brugðu því á það ráð að loka Slippstöðinni og logsjóða aftur dyr til að knýja á um lausn sinna mála. Þorsteinn J. Haraldsson, trúnaðarmaður starfsmanna, segir menn hafa ákveðið að grípa til aðgerða þegar fréttist að flytja ætti efni úr stöðinni til Kárahnjúka og að peningar væru hugsanlega að koma inn í fyrirtækið sem ekki færu í launagreiðslur. Starfsmenn hafa óskað svara stjórnenda og bankans um hvenær laun verða greidd en ekki fengið. Þeir skipuleggja nú vaktir allan sólarhringinn alla helgina til að knýja á um launagreiðslur.
Fréttir Innlent Mest lesið Kílómetragjaldið hækkar Innlent Ísland á Ameríkukorti Trumps Erlent Eftirförin endaði með hvelli Innlent Sendiherrann tekinn á teppið eftir færslu Trumps Innlent „Ég átti aldrei að lifa þetta af“ Innlent Dulin hækkun rökstudd með styttingu vinnuvikunnar Innlent „Myndi einhverri annarri stétt vera boðið upp á svona rugl?“ Innlent Klerkastjórnin missir tökin Erlent „Hvar ætla þau þá að spara?“ Innlent Klórar sér í kollinum Innlent Fleiri fréttir „Þetta er ekki til þess að auka mönnum bjartsýni“ Sendiherrann tekinn á teppið eftir færslu Trumps Kjörsókn jókst meira á landsbyggðinni en í borginni Sóttur til Póllands vegna manndráps á Kársnesi „Myndi einhverri annarri stétt vera boðið upp á svona rugl?“ „Vonandi birtist ekkert meira af myndum sem þessum“ Barnabótapotturinn stendur í stað en ýmis gjöld hækka Klórar sér í kollinum Dulin hækkun rökstudd með styttingu vinnuvikunnar Ríkisráðsfundur og styttist í setningu þings Skera niður Loftslags- og orkusjóð um rúma þrjá milljarða „Það hefur engin þjóð skattlagt sig til velsældar“ „Hvar ætla þau þá að spara?“ Hallalausa núllið eftir gamalli uppskrift Mikið útkall vegna eldamennsku á Álftanesi Rýnt í fjárlög Reykjavík í tíunda sæti yfir loftgæði Lokun á Hellisheiði og í Hvalfjarðargöngunum Fær að setja þessar fasteignir á sölu Kílómetragjaldið hækkar „Ég átti aldrei að lifa þetta af“ Ríkisútvarpið hafi stækkað á kostnað einkarekinna miðla Halla boðar til ríkisráðsfundar Daði kynnti fjárlagafrumvarp fyrir árið 2027 Erfiðara að sporna við innstreymi fíkniefna á Litla-Hrauni Tvær tilkynningar um eld „Merkilegt að sjá hvað aulaafturhaldinu dettur næst í hug“ Eftirförin endaði með hvelli „Svona er bara litróf mannlífsins“ Ökumaður bifhjóls flaug út af Kvartmílubrautinni Sjá meira