Innlent

Vill ekki vegatoll á Sundabraut

Árni Þór Sigurðsson, borgarfulltrúi, telur að það komi ekki til greina að taka upp vegatoll á væntanlegri Sundabraut þar sem í því felist óviðunandi mismunun fyrir höfuðborgarbúa. Hann segir eðlilegra að taka upp einhvers konar umferðargjald fyrir allt svæðið. Borgarstjórn hefur ekki tekið formlega afstöðu til þess hvort og með hvaða hætti eigi að taka upp sérstakt gjald á væntanlegri Sundabraut. Nokkur umræða hefur þó farið fram um málið að undanförnu til að ýta verkefninu áfram, að sögn Árna Þórs Sigurðssonar, borgarfulltrúa. Hann telur eðlilegt að menn skoði einhvers konar gjaldtöku í því sambandi, til að standa straum af samgöngubótum og til að efla almenningssamgöngur. Árna finnst ekki koma til greina að sérstakt gjald sé lagt á eina framkvæmd eins og Sundabraut vegna þess að þannig er eingöngu verið að láta ákveðinn hluta borgarbúa, sem búa í norðurhverfum borgarinnar, greiða fyrir auknar samgöngubætur. Á meðan aðrir eru að nýta sér samgöngukerfi borgarinnar og eru ekkert að greiða fyrir þau sérstaklega og í því felst mismunum sem er óviðunandi að hans mati.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×