Innlent

Eldur við vélsmiðju

Eldur kom upp í skúr við Óseyrarbraut 3 í Hafnarfirði um klukkan fimm í gær. Þar sem skúrinn er áfastur vélsmiðju var talin mikil hætta á að eldurinn kæmist í húsnæðið og því var allt slökkvilið höfuðborgarsvæðisins kallað út. Betur fór en á horfðist og náðu slökkviliðsmenn að slökkva eldinn áður en hann breiddist frekar út. Að sögn slökkviliðsmanna var útlitið verulega tvísýnt í upphafi. "En það slapp fyrir horn," sagði slökkviliðsmaður að slökkvistarfi loknu. Skúrinn er gjörónýtur.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×