Innlent

Segja okrað á ökuritum

Samtök verslunar og þjónustu, Samtök ferðaþjónustunnar, Samtök atvinnulífsins og Samtök iðnaðarins hafa mótmælt "þessari óraunhæfu gjaldtöku" harðlega, segja hana leiða til meiri rekstrarkostnaðar flutningatækjanna og lenda á neytendum. Ökuritarnir verða um fjórum sinnum dýrari hér á landi en á hinum Norðurlöndunum. Einar segir að hvert kort kosti 20 þúsund krónur samkvæmt tillögu Umferðarstofu. Seld verði 12-1300 kort á ári. Gildistími er fimm ár. Hvað varðar verðsamanburð við önnur lönd segir Einar það gefa nokkra mynd af stöðunni, að ef hægt væri að selja helmingi fleiri kort myndi kostnaður við hvert kort lækka um tæp fjörutíu prósent. Vægi fjöldans sé því mjög mikið.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×