Tveggja íslenskra kvenna er saknað 4. september 2005 00:01
Ekkert hefur enn heyrst frá Lilju Aðalbjörgu Ólafsdóttur Hansch sem leitað hefur verið síðan fellibylurinn gekk yfir bæ hennar. Áður var talið að Lilja væri eini Íslendingurinn sem ekki var búið að ná í en nú hefur komið í ljós að 75 ára íslenskrar konu er einnig saknað. Konan heitir Karly Jóna Kristjónsdóttir Legere og er kölluð Systa. Íslenskur frændi hennar hafði samband við utanríkisráðuneytið á laugardaginn og síðan þá hefur hennar verið leitað. Systa býr ásamt manni sínum, Robert Legere, í smábænum Diamond Head sem er um 75 km norð-austur af New Orleans og er hans og barnanna þeirra þriggja enn saknað. Systa á við hjartavandamál að stríða. "Það hefur ekki fengist staðfest hvar þær eru niðurkomnar og við höfum verið að reyna að koma því til leiðar að einhver fari á heimili þeirra og kanni aðstæður þar," sagði Pétur Ásgeirsson skrifstofustjóri á almenningsskrifstofu utanríkisráðuneytisins. Þegar blaðið fór í prentun hafði engum tekist að fara og kanna hvort konurnar tvær hefðust við á heimilum sínum því samgöngurnar á svæðinu eru svo erfiðar. Seint í gærkvöld var vonast til þess að íslensk kona, Þórey Jónsdóttir Harvey, myndi fara og keyra framhjá húsum kvennanna. Hún missti hús sitt og allar eigur í hamförunum. Ekki náðist í Þóreyju þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir. Ekkert hefur enn fréttst af Lilju Aðalbjörgu Ólafsdóttir en maður hennar er að koma heim frá Japan að sögn Helgu Hrannar Ólafsdóttur systur Lilju. Einnig ætlar bróðir þeirra að fara á hamfarasvæðið við annan mann ef Lilja verður enn ófundin á morgun. Margir Íslendingar og aðrir velviljaðir leggja sitt af mörkum við að finna konurnar tvær. Einn af þeim heitir Frank Bocchino og býr í bænum Pensicola sem er vestast í Flórídafylki. "Ég er að leita að tveimur konum núna. Ég vonast til að fá fréttir af þeim í dag eða á morgun en það er ekki alveg víst vegna þess hvernig ástandið er," segir Frank. Hann nýtir sér sambönd við kunningja sína í lögreglunni í bænum Biloxi, en bærinn varð mjög illa úti í hamförunum. Hann segir allgjört forgangsverkefni að finna Systu vegna hjartveikinda hennar.
Fréttir Innlent Mest lesið Kosningavaktin: Sjálfstæðisflokkurinn fagnaði um allt land Innlent Lokatölur í Reykjavík: Sjálfstæðisflokkurinn nær níunda manni inn Innlent Hildur með pálmann í höndunum Innlent Hveitibrauðsdagar ríkisstjórnarinnar endanlega búnir Innlent „Hvað sagðiru, 42? Það er geðveikt!“ Innlent Stefán Pálsson og Vinstrið sleikja sárin Innlent Bein útsending: Kosningaveisla á Sprengisandi Innlent Mótframbjóðendur „hvísla ástarorðum“ Innlent Lokatölur í Kópavogi: Ásdís með hreinan meirihluta Innlent Lokatölur í Hafnarfirði: Samfylking tapar fulltrúum og meirihluti heldur Innlent Fleiri fréttir „Nú er Hildur'ann – línur verða logandi“ Lokatölur í Bolungarvík: Máttur meyja og manna missir mann og meirihluta Meirihlutaviðræður í vikunni Lokatölur í Sveitarfélaginu Stykkishólmur: Óbreytt staða Hveitibrauðsdagar ríkisstjórnarinnar endanlega búnir Lokatölur í Húnabyggð: D listinn bætir við sig og nær meirihluta Lokatölur á Skagaströnd: Hjón náðu inn fyrir sitt hvorn listann Lokatölur í Langanesbyggð: Oddvitinn síðastur inn í óbundnum kosningum Bein útsending: Kosningaveisla á Sprengisandi Stefán Pálsson og Vinstrið sleikja sárin Margt í miðborginni og annríki hjá lögreglu Hildur með pálmann í höndunum Lokatölur úr Flóahreppi: Meirihlutinn bætti við sig manni Lokatölur í Garðabæ: Sjálfstæðismenn bæta við sig fulltrúa Lokatölur í Kópavogi: Ásdís með hreinan meirihluta Lokatölur í Reykjavík: Sjálfstæðisflokkurinn nær níunda manni inn Mótframbjóðendur „hvísla ástarorðum“ Lokatölur í Eyjafjarðarsveit: F-listinn stækkar meirihlutann Lokatölur úr Hörgársveit: Gróska fékk flest atkvæði Samhenta sveitin með mikinn sigur í Hvalfjarðarsveit Lokatölur úr Fjarðabyggð: Meirihlutinn heldur þrátt fyrir missi Lokatölur í Hafnarfirði: Samfylking tapar fulltrúum og meirihluti heldur Getur ekki lengur myndað tveggja flokka meirihluta með Miðflokknum Lokatölur í Mosfellsbæ: Meirihlutinn kolfallinn Raddir okkar allra unnu stórsigur Lokatölur úr Fjallabyggð: Meirihlutinn heldur velli Lokatölur á Akureyri: Sjálfstæðismenn rétt mörðu Bæjarlistann Lokatölur í Árborg: Sjálfstæðisflokkur hélt hreinum meirihluta Lokatölur í Borgarbyggð og Skorradalshreppi: Meirihlutinn fallinn Lokatölur í Múlaþingi: Meirihlutinn bætir við sig Sjá meira