Ræðarinn lokaði hringnum 3. september 2005 00:01
Kjartan Jakob Hauksson kom róandi til Reykjavíkurhafnar rétt rúmlega tvö í gær og lauk þar með hringferð sinni umhverfis landið. Fjölmenni var á hafnarbakkanum og fagnaði honum við komuna. "Þessi síðasti áfangi var nú hálfgerð hvíld miðað við það sem á undan er gengið," sagði Kjartan þegar hann steig á land og sagðist vera óþreyttur og þess vegna geta lagt í annan hring þá þegar. Ingþór Bjarnason pólfari hefur tekið saman þá vegalengd sem Kjartan hefur lagt að baki og eru það einir 2.300 kílómetrar, sem samsvarar vegalengdinni frá Reykjavík til Parísar. Hringferðin hófst 21. ágúst árið 2003 þegar hann reri úr höfninni í Reykjavík á árabátnum Rödd hjartans. Sá bátur var þannig hannaður að hægt var að sofa í honum en var þess vegna nokkuð þungur og því erfitt að halda honum frá fjöru þegar þannig blés. Því fór þannig 7. september að Kjartan hraktist í brimgarð við Rekavík á þungum bátnum skömmu eftir að hann hafði róið frá Bolungarvík. Báturinn fór á hvolf og brotnaði illa en ræðarinn slapp með minniháttar meiðsl. Björgunarbáturinn Gunnar Friðriksson kom honum til bjargar þó Kjartan hefði ekki kallað eftir honum. Urðu þetta endalok þeirrar ferðar fyrir Rödd hjartans en Kjartan lét ekki deigan síga. 5. júní í sumar hélt hann ferðinni áfram frá Bolungarvík en í það skiptið á árabátnum Frelsinu, sem er mun léttari og því auðveldara að fara í gegnum brim og halda honum frá fjöru. Hins vegar var ekki hægt að sofa í honum og því varð Kjartan að leita gistingar í landi. Gekk sú ferð mun betur en þó segir Kjartan að hann hafi verið óheppinn með veður í ágústmánuði, sem gerði það að verkum að hann varð oft landfastur. Til dæmis varð hann tvisvar að bíða í vikutíma þar til veður hægði, við Hjörleifshöfða og á Stokkseyri. Suðurströndin var afar erfið, segir Kjartan, og varð hann í tvígang að róa í rúmar þrjátíu klukkustundir því ekki var hægt að ná landi neins staðar á þeim slóðum. Lengsti samfelldi róður Kjartans var þegar hann reri frá Hjörleifshöfða til Stokkseyrar en það eru um það bil 140 kílómetrar.
Fréttir Innlent Mest lesið Lögðu herbergið í rúst og létu sig hverfa Innlent „Þú hefðir átt að vera með okkur í nótt“ Innlent Foreldrar kaupi efnið fyrir börn sín og jafnvel vini þeirra Innlent Vona að hægt verði að keyra til Eyja eftir tíu ár Innlent „Hann heitir bara Leó páfi held ég“ Innlent Sólmyrkvinn mögulega þúfan sem veltir hlassinu Innlent Segir fólki á ósamþykktum peptíðum að hætta strax Innlent Útiloka ekki samstarf en sjá djúpa gjá í málefnunum Innlent Bandaríski sjóherinn vildi taka skip á leigu og gera út til Grænlands Erlent Alvarlegar afleiðingar „brúnkuefnis“ og meirihlutinn sem er ekki fyrsti kostur Innlent Fleiri fréttir Lögðu herbergið í rúst og létu sig hverfa Vona að hægt verði að keyra til Eyja eftir tíu ár „Þú hefðir átt að vera með okkur í nótt“ Sekta fyrir nagladekk eftir helgi Sólmyrkvinn mögulega þúfan sem veltir hlassinu „Hann heitir bara Leó páfi held ég“ Foreldrar kaupi efnið fyrir börn sín og jafnvel vini þeirra Útiloka ekki samstarf en sjá djúpa gjá í málefnunum Kjörbúðin lokar og ein verslun eftir í bænum Alvarlegar afleiðingar „brúnkuefnis“ og meirihlutinn sem er ekki fyrsti kostur Landskjörstjórn fellst á tillögur um nýtt orðalag Ekki áhyggjuefni að skipið sé á leið til Íslands „Skutlarinn“ ekki ákærður fyrir að berja Hauk Ægi með spýtu Gullgrafaraæði magnast upp í tengslum við sólmyrkvann Bein útsending: Ræða bakslag í jafnréttismálum Kosningaspá Vísis: Berjast hart um þriðja fulltrúann Einar Ólafsson, fyrsti forstjóri Cargolux, látinn Borgin víki sér ítrekað undan ábyrgð Segir fólki á ósamþykktum peptíðum að hætta strax Hafa reist leikskóla á sex mánuðum fyrir helming kostnaðarins Ók í gegnum glerhurð í Kaupangi „Getur verið erfitt fyrir okkur sums staðar“ Eiginkonan hvarf til Rússlands skömmu eftir giftingu Forsetinn á fund páfans „Þetta er bara sanngirnismál“ Alls leituðu tvö hundruð manns í sex sólarhringa Sigmar Ó. Maríusson er látinn Lenti á hvolfi í á: „Þetta er ekkert notalegt“ „Ég er ekki viss um að þau viti hvað við viljum“ „Skilningur opnar ekki höfnina“ Sjá meira