Innlent

Persónulegri þjónusta

Steinunn Valdís Óskarsdóttir borgarstjóri opnaði fyrstu þjónustumiðstöð Reykjavíkur í gær. Þjónustumiðstöð Miðborgar og Hlíða er fyrsta þjónustumiðstöðin af sex sem verða opnaðar á næstu vikum. Opnun þjónustumiðstöðvanna er liður í endurskipulagningu þjónustu Reykjavíkurborgar við borgarbúa. Markmiðið er að gera þjónustuna aðgengilegri og efla þátttöku íbúa í mótun og uppbyggingu síns hverfis. "Nú er öll sú þjónusta sem fólk þarf að sækja í hverfinu, fólk þarf ekki að þvælast á milli margra staða og ég er viss um að þjónusta verði persónulegri en hefur verið," segir Steinunn Valdís sem er ánægð með að framtakið sé komið af stað eftir langan undirbúning. Meginverkefni þjónustumiðstöðvanna er að veita upplýsingar um þá þjónustu sem Reykjavíkurborg hefur í boði. Tekið verður tillit til hverfa sem eru rík af fjölmenningu og geta borgarar af erlendum uppruna leitað sér upplýsinga sem sérstaklega snúa að þeirra þörfum. Hægt verður að leita sér upplýsinga um móttöku og afgreiðslu umsókna, félagslega ráðgjöf, skóla, sérfræðiþjónustu, frístundamál og stuðningsþjónustu.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×