Innlent

Kenna sjö hundruð útlendingum

Mímir-Símenntun mun taka að sér íslenskukennslu um sjö hundruð útlendinga en síðustu árin hafa Námsflokkar Reykjavíkur haft umsjón með henni. Mímir mun þó njóta krafta nokkura kennara úr Námsflokkunum sem áfram munu kenna útlendingunum. Í samningnum felst einnig að Reykjavíkurborg stofni starfshóp skipaðan fólki með þekkingu og reynslu á viðfangsefninu og hefur hópurinn það verk með höndum að þróa kennsluhætti í íslensku fyrir útlendinga.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×