Gölluðu strætókerfi breytt 2. september 2005 00:01
Umtalsverðar breytingar á leiðakerfi Strætó voru samþykktar á stjórnarfundi í gær. Þar á meðal að fjölga vögnum, lagfæra tímatöflur og lengja þjónustutíma á tilteknum leiðum. Ágreiningur hefur verið í stjórninni um úrbætur á kerfinu, en þær breytingar sem nú hafa verið samþykktar taka gildi 15. október. Björk Vilhelmsdóttir stjórnarformaður segist vera ánægð með það skref sem stjórnin ákvað að stíga til að bæta úr þeim ágöllum sem komið hafa í ljós á leiðakerfinu og stuðla þannig að bættum almenningssamgöngum. Hún segir að áætlaður kostnaður vegna þessarar breytingar á yfirstandandi fjárhagsári sé allt að 1,5 milljónir króna. Gert sé ráð fyrir að sá viðbótarkostnaður rúmist innan ramma fjárhagsáætlunar ársins. Þau atriði sem stjórn Strætó bs. samþykkti í gær fela í sér að gerðar verða nauðsynlegar lagfæringar á tímatöflum þeirra leiða sem tekst illa að halda áætlun, sérstaklega S1, 11, 13, 14, 22 og 24. Jafnframt verða tengingar á skiptistöðvum milli leiða sérstaklega skoðaðar og þær lagfærðar eftir því sem unnt er. Breytingarnar kalla á rekstur fleiri vagna til viðbótar þeim sem áður var gert ráð fyrir. Vögnum hefur þegar verið bætt inn á sumar leiðanna, að sögn Bjarkar. Þá mun Strætó bs óska eftir samvinnu við sveitarfélögin sem að Strætó standa um gerð nýrra biðstöðva. Þjónustutími Strætó verður lengdur að hluta á leiðum 12 og 16 til miðnættis frá og með 15. október. Þá er hafin úttekt á leiðakerfinu þar sem sérstaklega verður hugað að athugasemdum og ábendingum frá vagnstjórum og farþegum. Enn fremur verður kannað viðhorf til leiðakerfisins og þjónustutímans. Niðurstöður úttektarinnar verða nýttar við endurskoðun leiðakerfisins sem áætlað er að geti átt sér stað um næstu áramót.
Fréttir Innlent Mest lesið „Dýrlingurinn“ aftur með leigubílaleyfi Innlent Herþotur sendar á loft vegna rússneskrar eftirlitsflugvélar Erlent Fyrirgefur morðingjanum Erlent ESB myndi taka Íslandi opnum örmum Innlent Réðst á konur og sló í miðborginni Innlent Bilun hjá fjarskiptafyrirtæki sögð hafa valdið fjórum dauðsföllum Erlent Ofurfellibylurinn Ragasa nálgast Filippseyjar Erlent Íslendingar í flugumferðarstjórn á stærsta flugvelli Grænlands Innlent Tveir fluttir á slysadeild eftir slys við Hvalfjarðargöng Innlent Hver verður formaður Pírata?: „Ekki séns“ Innlent Fleiri fréttir Murdoch-feðgar verði meðal kaupenda TikTok Réðst á konur og sló í miðborginni „Dýrlingurinn“ aftur með leigubílaleyfi ESB myndi taka Íslandi opnum örmum Tré ársins 2025 vex í kletti í Ölfusá Íslendingar í flugumferðarstjórn á stærsta flugvelli Grænlands Braust inn og stal bjórkútum Vilja ryðja brautina fyrir aðra í baráttunni við andlitslaust kerfi Eldur kviknaði í íbúð í Bakkahverfi Sjálfstæði Palestínu, minningarathöfn um Kirk og tré ársins Segir það slæma hugmynd að útfæra áminningarskyldu fyrir allan vinnumarkaðinn Tveir fluttir á slysadeild eftir slys við Hvalfjarðargöng Hver verður formaður Pírata?: „Ekki séns“ „Dreifbýlið hefur alltaf haft áhyggjur af því að fjármagnið sogist til þéttbýlisins“ Þorgerður Katrín endurkjörin Frítt í Strætó á Bíllausa deginum á morgun Hefur farið 100 sinnu á fjall á Fljótshlíðarafrétti Viðreisn verður áfram bara Viðreisn Einhverjar breytingar þurfi að eiga sér stað innan Framsóknar Sjálfstæð Palestína, væringar í Framsókn og fækkun um eitt sveitarfélag Sameining sveitarfélaganna hafi lítil áhrif á daglegt líf íbúa Staða Framsóknarflokksins, afnám áminningarskyldu og Evrópumálin í Sprengisandi Telur áform ráðherra vanhugsuð Líkamsárás í Hafnarfirði og maður með sveðju í Kópavogi Hyggst gera tilraun með lögregludróna í héraði Skorradalshreppur og Borgarbyggð sameinast Efast um að olíuleit beri árangur Plokkarar verðlaunaðar á Selfossi Píratar taka upp formannsembætti Ýkt umræða um olíufund, netárás á flugvelli og bakgarðshlaup í beinni Sjá meira