Innlent

Ókeypis tímar í þjóðhagfræði

Viðskipta- og hagfræðideild Háskóla Íslands ætlar að brydda upp á þeirri nýbreytni í haust að bjóða öllum áhugamönnum um hagfræði og efnahagsmál að sækja háskólafyrirlestra um þjóðhagfræði sér að kostnaðarlausu. Fyrirlestrarnir tilheyra námskeiðinu Þjóðhagfræði I sem er byrjendanámskeið í þjóðhagfræði fyrir nemendur viðskipta- og hagfræðideildar. Upplýsingavefur námskeiðsins verður opinn og aðgengilegur öllum og þar verður hægt að nálgast glærur og annað kynningarefni tengt fyrirlestrunum en fyrirlesari verður Þorvaldur Gylfason prófessor.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×