Innlent

Helmingsmunur á körfum

MYND/Sigurður Jökull
Tæplega 50 prósenta munur var á hæsta og lægsta verði vörukörfu þegar verðlagseftirlit ASÍ kannaði verð í stórmörkuðum á höfuðborgarsvæðinu fyrr í vikunni. Kom í ljós að vörukarfan var ódýrust í verslun Bónuss þar sem hún kostaði rúmlega 5.500 krónur, en hún var dýrust í Hagkaupum og kostaði rúmlega 8.200 krónur. Í vörukörfunni var að finna 23 almennar neysluvörur til heimilisins, meðal annars mjólkurvörur, kjötvörur, álegg, drykkjarvörur, grænmeti, ávexti, og hreinlætisvörur.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×