Innlent

Svala var komin á kaf

"Það var ekki annað að gera en að fara með hana í næstu höfn," segir Finnbogi Ólafsson, stýrimaður á Ársæli, sem dró skútuna Svölu til lands en hún var komin hálf á kaf í fyrrinótt. Þá brá áhöfnin á Ársæli á það ráð að koma henni til hafnar í Þorlákshöfn og voru þeir komnir þangað um klukkan þrjú í fyrrinótt. Að sögn stýrimanns stóð stefni skútunnar upp í loft þegar þeir voru við Vestmannaeyjar en skútan er þannig hönnuð að hún er ósökkvandi. Við athugun kom þó í ljós að ekki var gat á skútunni en sennilega hefur hún fengið inn á sig sjó.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×