Árni heitir nýjum störfum nyrðra 15. júlí 2005 00:01
Árni M. Mathiesen sjávarútvegsráðherra segir að stefnt sé að frekari fjölgun starfa á vegum ráðuneytisins á Akureyri en þeim hafi fjölgað fyrir norðan á undanförnum misserum. "Á þessum tímapunkti er ekki hægt að segja til um hvaða verkefni verða unnin á Akureyri né um hversu mörg ný störf er að ræða. Þó er ljóst að uppbygging á starfsemi Rannsóknastofnunar fiskiðnaðarins mun halda áfram fyrir norðan en einnig verða fleiri kostir skoðaðir," segir Árni Forsvarsmenn Kaupfélags Eyfirðinga áttu fund með Árna og Vilhjálmi Egilssyni ráðuneytisstjóra síðastliðinn fimmtudag þar sem farið var yfir hugmyndir stjórnar KEA um flutning verkefna á vegum ráðuneytisins til Akureyrar. Ráðherra segir fundinn hafa verið gagnlegan og góðar líkur séu á að af samstarfi ráðuneytisins og KEA verði. Niðurstöðu sé hins vegar ekki að vænta fyrr en í haust. Stjórn Kaupfélags Eyfirðinga lýsti í vor yfir áhuga á að koma að flutningi opinberra stofnana og verkefna til Akureyrar og er félagið tilbúið að leggja fram hundruð milljóna til að svo megi verða. Ein af þeim stofnunum sem KEA renndi hýru auga til var Fiskistofa og bauðst félagið til að greiða kostnaðinn við flutning meginhluta stofnunarinnar norður. Benedikt Sigurðarson, stjórnarformaður KEA, segir ljóst eftir fundinn með ráðherra og ráðuneytisstjóra að ekki verði af flutningi stjórnsýsluhluta Fiskistofu til Akureyrar. "Það er hins vegar hugsanlegt að fleiri verkefni á vegum Fiskistofu verði í framtíðinni unnin á Akureyri og við fögnum jákvæðri afstöðu ráðherra til flutnings á verkefnum norður," segir Benedikt. Árni segir vilja KEA til að koma að fjármögnun á flutningi verkefna á vegum ráðuneytisins norður mjög jákvæðan. "Það er af hinu góða þegar heimaaðilar hafa sett sér það markmið að skapa gott umhverfi fyrir ný störf. Slíkt liðkar til fyrir flutningi verkefna og að loknum sumarleyfum mun ég hitta forsvarsmenn KEA á ný," segir Árni.
Fréttir Innlent Stj.mál Mest lesið Braut reglur þegar hann minntist Steins Innlent Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Innlent Útför Steins Ármanns Innlent Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Innlent Jarðsyngur sinn besta vin Innlent Fæddi barn utan við verslun Elko Innlent Hafna tilboðum í rekstur skíðasvæðisins og sjá um það sjálf Innlent Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Innlent Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Innlent Rektorarnir svara fyrir sig Innlent Fleiri fréttir Próflaus á öfugum vegarhelmingi Uppstokkun í fullri sátt innan Framsóknar Tvíkjálkabraut konuna en sleppur við fangelsi Braut reglur þegar hann minntist Steins Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Hallinn töluverður en mun minni en búist var við Fæddi barn utan við verslun Elko Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Afkoma borgarinnar tólf milljörðum króna verri en reiknað var með Féllu af þingi en fóru ekki langt „Við tökum þessa stöðu mjög alvarlega“ Útför Steins Ármanns Ráðherra boðar aukið eftirlit Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Rektorarnir svara fyrir sig Opna nýja sundlaug í Urriðaholti Hekla Aurora skorin niður í minjagripi Jarðsyngur sinn besta vin Segja ráðherra hafa gengið fram hjá þingnefnd þegar hann sendi ESB bréf Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Geti leyst mannaflavanda hjúkrunarheimila með tæknilausnum Hafna tilboðum í rekstur skíðasvæðisins og sjá um það sjálf Uppgjör sýni „alvarlega“ stöðu Seltjarnarnesbæjar „Þið fáið ekki að skilgreina hvað íslenska þjóðin sagði“ Verkin segi allt aðra sögu en Kristrún Telja íslenska birgja sátta og áfengisverð í fríhöfninni samkeppnishæft „Við erum að laga Ísland“ Útgjöldin mikil en niðurstaðan rýr Bein útsending: Stefnuræða forsætisráðherra Dæmdir fyrir að sprengja heimagerða sprengju í Múlagöngum Sjá meira