Óska eftir skattskýrslum öryrkja 13. júlí 2005 00:01
Greiðslustofa lífeyrissjóðanna hefur krafist þess að þrettán hundruð öryrkjar skili skattframtölum síðustu þriggja ára áður en þeir fengu dæmda örorku. Í sumum tilfellum er um allt að tuttugu ára gömul gögn að ræða. Verði gögnunum ekki skilað fyrir fimmtánda júlí, falla greiðslur til þeirra frá lífeyrissjóðunum niður fyrsta október. Greiðslustofa lífeyrissjóðanna er ný og annast innheimtu og greiðslu lífeyris fyrir lífeyrissjóðina. Þeir hafa nú falið henni að skrifa þréttán hundruð öryrkjum og óska eftir skattskýrslum síðustu þriggja ára, áður en starfsorka þeirra skertist. Ástæðan er sú að samkvæmt lögum mega samanlagðar tekjur Öryrkja frá Lífeyrissjóði og Tryggingastofnun ríkisins ekki nema hærri upphæð en þeir höfðu í tekjur áður en veikindi eða slys leiddi til þess að starfsorkan skertist. Í einhverjum tilfellum, þar sem um láglaunafólk er að ræða, gæti þetta því leitt til þess að bætur frá lífeyrissjóðunum lækkuðu eða féllu alveg niður. Framkvæmdastjóri Greiðslustofunnar segir að um sé að ræða heildarathugun á öllum örorkulífeyrisþegum hvort þeir uppfylli það ákvæði að um tekjutap sé að ræða. Ekki hafi verið nægilega gengið á eftir skattframtölum á árum áður. Framkvæmdastjóri Öryrkjabandalagsins segir að venjan sé sú að bókhaldsgögn fyrnist á sex árum. Þá sé oft erfitt að nálgast þessi gögn, til að mynda hafi fengist þau svör frá skattinum að hluti þeirra sé varðveittur á þjóðskjalasafni. Mikil umræða hefur verið um fjölgun öryrkja í samfélaginu sem valdi lífeyrissjóðunum margvíslegum erfiðleikum. Bent hefur verið á að í sumum tilfellum geti það borgað sig að fara úr láglaunastarfi á örorkubætur. Gísli Helgason, framkvæmdastjóri Öryrkjabandalagsins segir að samkvæmt því sem fram hafi komið í viðtölum starfsmanna Öryrkjabandlags Íslands við einhverja að starfsmönnnum Lífeyrissjóðanna virðist sem svo að þetta bitni einna helst á þeim sem hafa einna lægstar greiðslu hjá lífeyrissjóðunum. Hann segir því spruninguna vera þá hvort í raun og veru sé ástæða til þess að skerða ætið þá sem minnst hafa. Gísli segir það vera eitt einkenni þess að þegar kreppi að þá sé tekið af þeim sem minnst hafa.
Fréttir Innlent Mest lesið Illa brugðið en heill á húfi Innlent Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Erlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Gul viðvörun eftir stóra skriðu Innlent Fleiri fréttir Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Sjá meira