Gísli þekkti morðingja sína 13. júlí 2005 00:01
Fimmtíu og fjögurra ára Íslendingur sem var myrtur í Suður-Afríku hét Gísli Þorkelsson. Hann hafði búið í Suður-Afríku í ellefu ár og starfaði á eigin vegum við viðskipti. Hann á einn uppkominn son sem er búsettur á Íslandi. Sá sem fann líkið og gerði lögreglu viðvart hafði leigjanda á sínum snærum sem hafði fengið að geyma tunnu í húsagarði hans í borginni Boksburg um fimm vikna skeið. Þegar farið var að athuga tunnuna var hún full af steypu og stóðu upp úr henni mannsfætur. Leigjandinn, tuttugu og átta ára karlmaður var handtekinn og nokkuru síðar fjörutíu og fjögurra ára kona. Gísli sem hvarf fyrir fimm vikum hafði nýlega selt íbúð og var með talsvert fé í fórum sínum. Hann var nýkominn úr fríi frá Bandaríkjunum þar sem hann hafði dvalið ásamt syni sínum hjá systur sinni, Kötlu Donelly, sem búsett er í Philadelphiu. Hún segir að þau hafi átt góðar stundir saman og að hann hafi síðan farið heim til Suður-Afríku í lok maí og að hann hafi ætlað að hringja í hana þegar hann kæmi á leiðarenda. Hún heyrði síðan ekkert í honum og byrjaði að hringja í hann en náði aldrei sambandi. Þá velti Katla því fyrir sér hvort að hann hefði kannski farið í annað ferðalag. Hún vissi síðan ekkert um afdrif bróður síns fyrr en lögreglustjórinn í Suður-Afríku hafði samband við hana á þriðjudagsmorgun. Komment Katla Morðingjarnir sem hann hafði þekkt í nokkurn tíma, keyrðu hann á flugvöllinn og sóttu hann þangað þegar hann sneri aftur. Katla segist hafa vitað um þetta fólk því hún hafði sent þeim upplýsingar um fluferðir hans. Hún sagði að Gísli hafi álitið morðingjan ágætis kunningja sína. Hún sagði einnig að hann hafi ekki verið búinn að þekkja þau lengi Parið sem er í haldi lögreglunnar hafði selt bifreið í eigu Gísla og reynt að ná peningum út af reikningi hans án árangurs. Konan hefur nú játað sinn hlut í morðinu. Katla segir fréttina um morðið hafa verið reiðarslag. Þótt hún hafi ekki heyrt í Gísla um tíma, hefði ekki hvarflað að henni að neitt óeðlilegt væri á ferðinni.
Fréttir Innlent Mest lesið Illa brugðið en heill á húfi Innlent Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Erlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Gul viðvörun eftir stóra skriðu Innlent Fleiri fréttir Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Sjá meira