Mikil kjaraskerðing 13. júlí 2005 00:01 "
Verðhækkanir á dísilolíu hafa í för með sér gríðarlegan kostnaðarauka," segir Hlynur Snæland Lárusson, deildarstjóri bílaútgerðar hjá ferðaskrifstofunni Snæland Grímssyni. "Sérstaklega er um mikla kjaraskerðingu að ræða fyrir þröngan kjarna manna sem lifa á bílaútgerð." Hlynur hefur áhyggjur af því hvaða áhrif verðhækkanir á díselolíu um síðustu mánaðamót hafa á ferðaþjónustu sem byggir á jeppa- og rútuferðum. "Ferðirnar eru dýrar og þess vegna er erfitt að hækka verðið," segir Hlynur. "Verðhækkanir koma í það minnsta til með að draga mikið úr jeppaferðunum, jafnvel ganga að þeim dauðum." Hlynur segir einnig fyrirsjáanlegt að verr muni ganga að selja erlendum fyrirtækjum hvataferðir. "Það er slæmt þar sem þessar ferðir eru seldar utan háannatíma og skilja yfirleitt mjög mikið eftir sig." Engar ákvarðanir hafa enn verið teknar um framhald jeppa- og rútuútgerðar hjá fyrirtækinu að sögn Hlyns. "Það er þó ljóst að grundvöllurinn fyrir þessum ferðum hefur versnað mjög mikið." Skúli H. Skúlason, formaður Ferðaklúbbsins 4x4, segir dæmi þess að fólk í þeirra hópi hafi skipt dísilbílum sínum út fyrir bensínbíla. "Það er ekki ódýrara að reka bensínbíl en fólk fær annað í staðinn sem það sækist eftir, snarpari vélar og léttari bíla til dæmis," segir Skúli. "Það er ekki síst slæmt í ljósi þess að þeir sem mest ferðast hafa hingað til verið sá hópur almennings sem helst hafa notað dísilolíu." Skúli segir að klúbburinn gæti sætt sig við breytingar á verði dísilolíu út frá umhverfissjónarmiðum ef þær ýttu undir aukna notkun á dísilbílum. "Þegar lítrinn af dísilolíu er hins vegar orðinn jafndýr og jafnvel dýrari en bensín sjáum við alls ekki að þessi umhverfissjónarmið náist fram."
Fréttir Innlent Mest lesið Illa brugðið en heill á húfi Innlent Tvær þyrlur sendar og hópslysaáætlun virkjuð vegna alvarlegs slyss Innlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Erlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Samgöngur í lamasessi eftir enn eina árás á brú Erlent Fleiri fréttir Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Tvær þyrlur sendar og hópslysaáætlun virkjuð vegna alvarlegs slyss Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Sjá meira