Gjaldfrjáls leikskóli um allt land 13. júlí 2005 00:01
Gjaldfrjáls leikskóli er það sem koma skal um allt land, segir sveitarstjóri Súðavíkurhrepps. Frá og með 1. september borga Súðvíkingar ekkert fyrir að senda börn sín í leikskóla. Sveitastjórnin í Súðavíkurhreppi ætlar að gera allt sem í þeirra valdi stendur til þess að laða fólk til sín á næstu misserum. Auk þess að bjóða upp á gjaldfrjálsan leikskóla ætlar sveitarfélagið að afhenda ókeypis lóðir til þeirra sem vilja byggja á Súðavík og þá fá þeir sem ætla að byggja þar líka 17.500 krónur á hvern fermetra af íbúðarhúsnæði. Og þetta er ekki allt því sveitarfélagið ætlar að úthluta allt að þrem milljónum til þeirra sem byrja rekstur og skapa störf á Súðavík. Ástæðan fyrir aðgerðunum er einföld að sögn Ómars Más Jónssonar, sveitarstjóri Súðavíkurhrepps; fólksfækkun og fækkun starfa og stjórninni hafi borið skylda til að bregðast við því. Ómar segir sveitarfélagið standa vel fjárhagslega, enda séu til fimmtíu milljónir sem hafi orðið afgangs undanfarin ár og eins sé eigin staða sveitarfélagsins góð eftir sölu á fyrirtækjum. Góður fjárhagur sé ástæðan fyrir því að hægt sé að ráðst í þessar aðgerðir. Og hann telur að innan skamms muni það ekki þykja tiltökumál að hafa leikskólann gjaldfrjálsan um allt land. Vonast er til að á næstu fimm árum fjölgi íbúum Súðavíkur að minnsta kosti um fjörutíu og að lágmarki tólf stöðugildi bætist við. Gangi þetta eftir muni fjárútlátin koma til baka í formi útsvars. Ómar segir að í svona litlu samfélagi skipti hver fjölskylda miklu máli.
Fréttir Innlent Mest lesið Illa brugðið en heill á húfi Innlent Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Erlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Gul viðvörun eftir stóra skriðu Innlent Fleiri fréttir Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Sjá meira