Á þriðja tug nýrra fyrirtækja 12. júlí 2005 00:01
Á þriðja tug nýrra iðnaðar- og þjónustufyrirtækja hafa hafið starfsemi á Reyðarfirði frá því að tilkynnt var um álversframkvæmdir. Uppbyggingin kallar á milljarðafjárfestingar sveitarfélagsins en bæjarstjóri Fjarðabyggðar segir að Reyðarfjörður verði miðpunktur Austurlands. Fyrstu áhrif ákvörðunar um álver birtust í kauptúninu á Reyðarfirði þegar ýmis iðnaðar- og þjónustufyrirtæki hófu að koma sér fyrir, eins og steypustöð og byggingavöruverslanir. Fyrirtæki sem voru þegar á staðnum, eins og flutningsaðilar og olíufélög, brugðust við með því að treysta aðstöðu sína en þarna í þessu 700 manna samfélagi voru fyrir þrjár bensínstöðvar. Þarna eru nú einnig þrír bankar; Íslandsbanki hefur bæst við en fyrir voru Sparisjóðurinn og Landsbankinn sem flutti í nýtt húsnæði, fór inn í verslunarmiðstöðina Molann. Hún er sennilega sýnilegasta dæmið um nýsköpunina í kauptúninu. Reyðfirðingar hafa þar fengið lágvöruverslun, apótek, tískuvöruverslun, íþróttabúð og áfengisverslun. Veitingahús, kaffihús, gistihús og mötuneyti hafa risið upp, einnig verkfræðistofur og verktakar. Samhliða hefur sveitarfélagið ráðist í miklar framkvæmdir. Guðmundur Njarnason bæjarstjóri segir að á árunum 2003-2007 verði fjárfest fyrir um 3,5 milljarða, t.d. í skólum, hitaveitu og gatnagerð. Þá eru ónefnd fyrirtækin sem eingöngu reisa álverið; þar er langstærst verktakafyrirtækið Bechtel en auk þess eru þarna t.a.m. Suðurverk, Héraðsverk og Ístak. Háhýsi rísa í þorpinu og þegar álversframkvæmdunum lýkur segir bæjarstjórinn að komið verði myndarlegt bæjarfélag. „Reyðarfjörður verður heimsborg eftir einhvern tíma þó hún verði ekki fjölmenn. Svo þegar göngin koma suður á Fáskrúðsfjörð þá er Reyðarfjörður auðvitað miðpunkturinn hér á Austurlandi,“ segir Guðmundur.
Fréttir Innlent Mest lesið Illa brugðið en heill á húfi Innlent Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Erlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Gul viðvörun eftir stóra skriðu Innlent Fleiri fréttir Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Sjá meira