Fréttablaðið bætir sig á landsvísu 11. júlí 2005 00:01
Lestur Fréttablaðsins hefur aukist á landsvísu samkvæmt nýjustu fjölmiðlakönnun IMG Gallup og er kominn í 67% úr 66%. Á sama tíma hefur lestur Morgunblaðsins fallið úr 52% í 49% og DV úr 19% í 16%. Tilkoma Blaðsins kann að hafa áhrif á lestur annarra blaða en því er einungis dreift á höfuðborgarsvæðinu. Þar er blaðið með 44% meðallestur, en 29% á landsvísu. Þetta er ívið minni lestur en Fréttablaðið var með í sinni fyrstu könnun í október árið 2001. Þá mældist meðallestur þess á höfuðborgarsvæðinu 59% og á landsvísu 38%. Á það er þó að líta að Blaðið hefur göngu sína í heldur meiri samkeppni en Fréttablaðið þá, þegar ekki voru aðrir um hituna en Morgunblaðið og DV. Frídreifing var nokkur könnunardagana, en frídreifing Morgunblaðsins, nam 5,1% og DV 4,6%. Þegar horft er til uppsafnaðs áhorfs könnunarvikuna er Sjónvarpið með mest áhorf sjónvarpsstöðva, með 95%. Áhorf á bæði Stöð tvö og Skjá einn minnkar milli kannana, en þar koma að einhverju leyti til áhrif þriggja landsleikja sem allir voru í könnunarvikunni, en í handbolta tókust Íslendingar á við Svía og svo síðar í vikunni við Ungverja og Maltverja í fótbolta. Fótboltaleikirnir voru báðir á sýningartíma frétta Stöðvar tvö og Íslands í dag. Stöð tvö mældist með 71% áhorf og Skjár einn 66%. Horf á Stöð tvö plús eykst og fer í 28% og Stöð tvö bíó er í 24 prósentum. Vinsælasti sjónvarpsþáttur landsins er tvímælalaust Út og suður í umsjá Gísla Einarssonar fréttamanns, með 36% uppsafnað áhorf á bæði frum- og endursýningar. Ef hins vegar er einungis horft til sjónvarpsáhorfs fólks undir fimmtugu þá er sjónvarpsþátturinn Taktu lagið með Hemma Gunn sá vinsælasti af íslenskum þáttum með 28% uppsafnað áhorf. Af öðrum sjónvarpsþáttum í sama aldursflokki hafa Aðþrengdar eiginkonur aðeins meira áhorf með 34% og Lífsháski (Lost) með 33%.
Fréttir Innlent Mest lesið Illa brugðið en heill á húfi Innlent Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Erlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Gul viðvörun eftir stóra skriðu Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Fleiri fréttir Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Sjá meira