Þarfnast brýnnar endurskoðunar 11. júlí 2005 00:01
Neyðarskipulag almannavarna þarfnast brýnnar endurskipulagningar. Liðin eru þrettán til fimmtán ár síðan skipulagið var síðast endurskoðað en upphaflega var gengið út frá því að endurskoðun færi fram á fimm ára fresti að sögn Björns Halldórssonar, deildarstjóra almannavarnadeildar Ríkislögreglustjóra. "Þetta hefur dregist úr hömlu," segir Björn og bætir við að gert hafi verið ráð fyrir því að endurskoðun neyðarskipulaganna færi fram á þessu ári. "Það er ennþá á stefnuskránni en við erum önnum kafin," segir Björn. "Vonandi náum við þó að byrja vinnuna á þessu ári." Björn segir að laga þurfi stjórnunarkafla neyðarskipulaga að nýju verkþáttaskipulagi. "Núverandi neyðaráætlanir eru að stofni til frá árinu 1991 með minniháttar síðari tíma breytingum. Þær þarf að laga að ríkjandi hugmyndum um aðgerða- og vettvangsstjórnir auk þess sem samþætta þarf stigskiptingu neyðaráætlana," segir Björn en breytingarnar lúta fyrst og fremst að því hverjir fara með stjórn neyðaraðgerða í héraði. Björn segir að þrátt fyrir að endurskipulagningin hafi dregist á langinn sé ekki ástæða til þess að hafa verulegar áhyggjur. "Menn eru vanir bæði að æfa saman og vinna saman auk þess sem þeir þekkja nýja verkþáttaskipulagið til hlítar," segir Björn. "Það breytir því þó ekki að það á að uppfæra skipulagið." Björn telur vinnu við nýtt skipulag taka um þrjá mánuði og verður það gert í samstarfi almannavarnadeildar Ríkislögreglustjóra og almannavarnanefnda í héraði. Reynt verði að sinna endurskoðun skipulagsins samhliða öðrum verkefnum deildarinnar. Ekki sé um verulegan kostnað að ræða. "Til þess að vinna að þessu þarf fólk sem gjörþekkir neyðarskipulög og vinnu í neyðaraðgerðum," segir Björn Halldórsson. "Málum er síður en svo þannig háttað að ekki sé verið að endurskipuleggja öll viðbrögð við þeirri vá sem að kynni að steðja," segir Björn Bjarnason dómsmálaráðherra. Björn segir að á þeim árum sem um ræðir hafi skipulega verið unnið að aðgerðum vegna snjóflóðavarna, eldgosa auk þess sem unnið hafi verið að viðbrögðum við aðsteðjandi hættu á höfuðborgarsvæðinu.
Fréttir Innlent Mest lesið Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Innlent Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Erlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Gul viðvörun eftir stóra skriðu Innlent Fleiri fréttir Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Sjá meira