Erlendir fangar á Íslandi 9. júlí 2005 00:01
Náin tengsl skapast milli erlendra og íslenskra fanga þegar þeir sitja saman í fangelsum landsins. Skiptar skoðanir eru um hvort eigi að aðskilja þá eins og gert er í Finnlandi. Á Litla Hrauni sitja allir helstu glæpamenn landsins og innan um eru erlendir glæpamenn, sem hafa verið dæmdir af íslensku réttarkerfi fyrir fíkniefnainnflutning, fjársvik, mansal og aðra glæpi. Smári Sigurðsson hjá alþjóðadeild Ríkislögreglustjóra segir það augljóst að um leið og erlendum föngum fjölgi á Litla Hrauni og ná sambandi við heimamenn þar þá víkkar sjóndeildarhringur heimamanna og líklegt að þeir afli sér sambanda erlendis eftir að þeir losna og Ásgeir Karlsson hjá fíkniefndeild tekur undir orð Smára. Á síðustu fimm árum hefur erlendum föngum fjölgað mikið í íslenskum fangelsum. Í júní voru þeir átján. Lögreglumenn sem fréttastofan hefur rætt við segja nauðsynlegt að skilja að erlenda og íslenska fanga eins og gert sé í Finnlandi. Ekki eru þó allir á þeirri skoðun. Helgi Gunnlaugsson prófessor telur slíkan aðskilnað ekki í anda nútímaþjóðfélagshátta og að sérstök fangelsi muni ekki fyrirbyggja glæpi frekar en fangelsi að öðru leyti. Burðardýrin koma frá öllum heimshornum. Og glæpamennirnir eru enn fleiri sem yfirvöld stöðva vegna annarra brota, svo sem fjársvika og mansals. Lögregluyfirvöld á Íslandi hafa lagt mikla vinnu í að hindra að alþjóðleg glæpastarfsemi fái að blómstra hér á landi. Jón H. B. Snorrason segir lykillinn að því að hindra slíka starfsemi vera eftirlit með peningafærslum til og frá landinu og hann segir slóð peningana oft koma lögregluyfirvöldum á sporið. Stefán Eiríksson hjá dómsmálaráðuneytinu segir ráðurneytið hafa fylgst náið með þróun mála innanlands í samstarfi við aðrar stofnanir og einnig er fylgst náið með því sem er að gerast í nágarannlöndunum. Hann segir jafnframt skipta höfuðmáli að íslensk lögregluyfirvöld og önnur yfirvöld sem berjast gegn skiplagðiri glæpastarfsemi hafi fullnægjandi heimildir lögum samkvæmt til þess að takast á við þessa ógn.
Fréttir Innlent Mest lesið Illa brugðið en heill á húfi Innlent Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Erlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Gul viðvörun eftir stóra skriðu Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Fleiri fréttir Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Sjá meira