Innlent

Fíkniefni í Norrænu

Tollverðir á Seyðisfirði fundu rúmlega fjögur kíló af hvítu dufti við komu ferjunnar Norrænu í morgun, en grunur leikur á að efnið sé amfetamín. Samkvæmt heimildum fréttastofu hafa tveir Litháar verið handteknir vegna málsins. Hafði efninu verið komið haganlega fyrir í leynihólfi fólksbifreiðar mannanna. Við afgreiðslu ferjunnar í morgun naut embætti sýslumannsins á Seyðisfirði aðstoðar Tollstjórans í Reykjavík, ríkislögreglustjórans, sýslumannsins á Keflavíkurflugvelli og á Eskifirði.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×