Sjálfstæðisflokkur bætir við sig 26. júní 2005 00:01
Sjálfstæðisflokkurinn bætir verulega við sig fylgi í suðvesturkjördæmi samkvæmt könnun Gallup frá því byrjun mánaðarins. Hann hefur samkvæmt könnuninni 44 prósenta fylgi í kjördæminu en hlaut 38,5 prósent fylgi í kosningunum 2003. Samfylkingin fengi 31,9 prósent en fékk 32,8 þegar kosið var, Vinstri-grænir 10,1 og bæta við sig tæpum fjórum prósentustigum en hann fékk 6,2 í kosningum, Framsóknarflokkur fengi 7,9 prósent en fékk 14,9 prósent áður og Frjálslyndir 6,1 prósent sem er aðeins minna en flokkurinn fékk í kosningum en þá fékk hann 6,7 prósent. Alls svöruðu 244 í kjördæminu en könnunin var hluti af þjóðarpúlsi Gallup og voru niðurstöður hans um fylgi stjórnmálaflokkanna birtar á landsvísu í byrjun mánaðarins. Hafa ber í huga að þjóðarpúls Gallup mældi fylgi til stjórnmálaflokka á landsvísu og voru niðurstöðurnar aðeins birtar fyrir landið í heild sinni. Fréttablaðið hefur fengið gögn sem unnin hafa verið úr könnuninni og sundurliðuð fyrir hvert kjördæmi. Samanburður af þessu tagi getur verið ónákvæmur þar sem um er að ræða tiltölulega lágt svarhlutfall í hverju kjördæmi fyrir sig. Í suðurkjördæmi fengi Sjálfstæðisflokkurinn 38,7 prósent fylgi en hafði 29,2 prósent í síðustu kosningum og bætir því við sig tæpum 10 prósentum. Samfylkingin fengi 32,9 prósent en fékk 29,7 prósent í kosningum, Vinstri-grænir fengju 9,1 prósent en 4,7 prósent þegar kosið var, Framsóknarflokkurinn 14,6 prósent en 23,7 prósent í kosningunum og Frjálslyndir 4,9 prósent en höfðu 8,7 prósent í síðustu kosningum. Í suðurkjördæmi var byggt á 154 svörum. Niðurstöður könnunarinnar fyrir norðvestur- og norðausturkjördæmi verða birtar í Fréttablaðinu á morgun.
Fréttir Innlent Stj.mál Mest lesið Rekinn eftir tvo mánuði hjá skattinum og samdægurs tilnefndur sendiherra á Íslandi Erlent Lést eftir skyndileg veikindi við klettastökk Innlent Gefur ekkert landsvæði eftir Erlent Samdráttur og vítahringur í boði stjórnvalda Innlent Segjast ekkert hafa vitað um hætturnar í Reynisfjöru Innlent Rannsaka ásakanir á hendur ríkissáttasemjara Innlent Aserar og Armenar skrefi nær friði eftir sögulegan fund í Hvíta húsinu Erlent Amma ræsti neyðarhnapp við enn eina árás dóttur sinnar Innlent Skotárás á Times Square Erlent Flokkarnir dæla milljónum í áróður á Meta Innlent Fleiri fréttir Mikill meirihluti hefur áhyggjur af stríðsátökum Rannsaka ásakanir á hendur ríkissáttasemjara Samdráttur og vítahringur í boði stjórnvalda Ekki stafi lengur tilvistarógn af Hamasliðum Lést eftir skyndileg veikindi við klettastökk Segjast ekkert hafa vitað um hætturnar í Reynisfjöru Féll fjóra metra í vinnuslysi í Kópavogi Ómeðvitaðir ferðamenn í Reynisfjöru, síbökuð hjón og tölvuspil fram á nótt Enginn árangur af „veiða og sleppa“ aðferðinni Flokkarnir dæla milljónum í áróður á Meta Hræðast að fleiri en einn fari í sjóinn Átökin „hvorki vegna né þrátt fyrir“ áfengissöluna Heitavatnslaust í Laugardal Lést við flúðasiglingar í Vestari-Jökulsá Langflestir telja sig búa á góðum stað fyrir samkynhneigða Áttu ekki von á neinu veseni og viðbúnaður eftir því Amma ræsti neyðarhnapp við enn eina árás dóttur sinnar Maður féll í Vestari-Jökulsá Fangar í einangrun vegna sama máls noti ekki sama útisvæði Hundarnir þegar aflífaðir en ákvörðun um lógun ólögmæt Samskipti fanga í einangrun, tapsárir Danir og drottning Gleðigöngunnar Allir fundir við ESB „fyrst og fremst“ hagsmunagæsla Telja að lífvörður myndi aðeins gera ferðamenn kærulausari Esjan snjólaus og það óvenju snemma Íslendingurinn í Grikklandi laus úr haldi Dvalarleyfi langtum dýrara í hinum Norðurlöndunum Lögreglurannsókn á banaslysi í Brúará „svo til“ lokið Nauðsynlegt að fólk fái úrræði til að vernda sig frá djúpfölsunum Enginn handtekinn eftir hópslagsmálin Skjálfti fannst á höfuðborgarsvæðinu Sjá meira