Blendnar tilfinningar á Valsvelli 26. júní 2005 00:01
Leikur Vals og KR í Landsbankadeildinni í kvöld verður ekki aðeins áhugaverður fyrir þær sakir að þar mætast gömlu Reykjavíkurstórveldin í deildarleik í fyrsta sinn í langan tíma, heldur má gera ráð fyrir að með einhverjum verði blendnar tilfinningar í leiknum. Willum Þór Þórsson, þjálfari Vals mun hér stýra liði sínu í fyrsta skipti gegn sýnu gamla félagi sem lét hann fara í fyrra og Guðmundur Benediktsson mun spila sinn fyrsta leik gegn KR, þar sem hann hefur leikið lungann úr sínum ferli. Fréttablaðið sló á þráðinn til Guðmundar og spurði hann hvernig leggðist í hann að spila á móti þeim svarthvítu. "Það verður áræðanlega mjög skrítin tilfinning að spila á móti KR, enda var ég búinn að vera hjá þeim í tíu ár áður en ég kom til Vals," sagði Guðmundur. "Ég reyni auðvitað bara að standa mig vel eins og í öllum leikjum, það skiptir ekki máli hvort það er gegn KR eða einhverju öðru liði. Því er þó ekki að neita að þetta verður hálf skrítið, en við erum búnir að tapa tveimur leikjum í röð og því er kominn tími á sigur hjá okkur," sagði Guðmundur. Við spurðum hann að lokum hvort hann héldi að fyrrum félagar hans í KR myndu veigra sér við að sparka hann niður í leiknum í kvöld. "Nei, ég hugsa að þeir geri það nú ekki, ef ég þekki þá rétt," sagði Guðmundur og hló. "Þetta verður áræðanlega hörkuleikur og þegar á völlinn er komið er enginn annars bróðir í þessu, enda er ekki vænlegt til árangurs að vera eitthvað að tipla á tánum í þessari baráttu þó maður sé að spila á móti vinum sínum."
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Leið Englands algjör martröð eins og staðan er Fótbolti Dramatískt sigurmark tryggði Þjóðverjum farseðil í 32-liða úrslit Fótbolti Stóru sleggjurnar ekki afskrifaðar fyrir spennandi kvöld á U.S. Open Golf Bannað að fara í brúðkaup en skoraði sjö mörk og setti met Fótbolti Hefja viðræður um kaup á Tonali Enski boltinn Greip gæsina þegar hún gafst og leiddi Hollendinga til stórsigurs Fótbolti Vignir Vatnar tryggði sér sigur á sterku boðsmóti Sport Flugu í 22 tíma á rellu án klósetts til að sjá Skota á HM Fótbolti „Búinn að þroskast um fimm ár á þessu eina móti“ Golf Fyrstur til að fá rautt fyrir að hylja munninn en Tyrkir úr leik á HM Fótbolti Fleiri fréttir Dramatískt sigurmark tryggði Þjóðverjum farseðil í 32-liða úrslit Þriggja holu bráðabana þurfti í einvígi Perlu og Elsu Hefja viðræður um kaup á Tonali Vignir Vatnar tryggði sér sigur á sterku boðsmóti Greip gæsina þegar hún gafst og leiddi Hollendinga til stórsigurs Stóru sleggjurnar ekki afskrifaðar fyrir spennandi kvöld á U.S. Open Spiluðu allan leikinn í tapi gegn Rosenborg Bannað að fara í brúðkaup en skoraði sjö mörk og setti met Leið Englands algjör martröð eins og staðan er Amanda allt í öllu í frábærri endurkomu Varði mark Víðis og Sindra en er mættur á HM Ronaldinho gæti tekið fram skóna 46 ára gamall Tyrkir í sárum: „Biðjum alla tyrknesku þjóðina afsökunar“ „Búinn að þroskast um fimm ár á þessu eina móti“ Flugu í 22 tíma á rellu án klósetts til að sjá Skota á HM Maður dagsins á HM: „Svikari“ af miklum markvarðaættum Gervigreindar-Maradona hneykslar marga í Argentínu Fyrstur til að fá rautt fyrir að hylja munninn en Tyrkir úr leik á HM Cunha með tvö og Brassar höfðu það náðugt Ætlar að sýna öllum heiminum hvað systir hans heitin sá í honum Dagskráin: Spennan magnast á Opna bandaríska risamótinu í golfi Zlatan trúir því að Bandaríkin geti orðið heimsmeistari Marokkómenn skoruðu sigurmarkið eftir 71 sekúndu Segir að Liverpool verði að berjast um titilinn á fyrsta ári Iraola Skemmdi búningsklefann í klúbbhúsinu í fyrra en setti met í ár Fyrrum markakóngur Seríu A lést 58 ára gamall Fjórar heiðraðar sem spiluðu fyrsta landsleikinn fyrir sjötíu árum Skotar og Marokkóar berjast um sæti í 32-liða úrslitum Njarðvíkingar stöðvuðu sigurgöngu Leiknisliðsins Bandaríkjamenn með fullt hús eftir tvo leiki Sjá meira