Segir Ólínu leggja sig í einelti 25. júní 2005 00:01 "
Engar kvartanir höfðu borist, svo þetta er bara einelti sem heldur áfram," segir Ingibjörg Ingadóttir, enskukennari við Menntaskólann á Ísafirði, um þá ákvörðun Ólínu Þorvarðardóttur skólameistara að fá óháðan aðila til að fara yfir vorpróf hennar. Ingibjörg segir að Ólína sé að reyna að leika sama leik og í desember þegar svipað mál kom upp en dómsátt náðist í því í apríl. Félag framhaldsskólakennara sendi menntamálaráðuneytinu stjórnsýslukvörtun í vikunni vegna ákvörðunar Ólínu. Samkvæmt 8. grein í aðalnámskrá framhaldsskólanna er námsmat á ábyrgð kennara og því brot á lögum að fá þriðja aðila til að fara yfir prófin. Aðalheiður Steingrímsdóttir, formaður Félags framhaldsskólakennara, segir að ef áform Ólínu nái fram að ganga og að hún veiti Ingibjörgu áminningu, líkt og gerðist í desember, sé annað dómsmál í uppsiglingu. "Í þessari stjórnsýslukvörtun krefjumst við þess að ráðuneytið stöðvi tafarlaust þetta ferli sem er farið af stað fyrir vestan. Við vonum auðvitað að ráðuneytið hafi vit fyrir Ólínu," segir Aðalheiður. "Ég treysti því bara að ráðuneytið tali við sinn undirmann því hún er að fara fram úr öllum venjulegum vinnubrögðum," segir Ingibjörg Ingadóttir en ekki náðist í Ólínu Þorvarðardóttur vegna málsins.
Fréttir Innlent Mest lesið Rekinn eftir tvo mánuði hjá skattinum og samdægurs tilnefndur sendiherra á Íslandi Erlent Lést eftir skyndileg veikindi við klettastökk Innlent Gefur ekkert landsvæði eftir Erlent Samdráttur og vítahringur í boði stjórnvalda Innlent Segjast ekkert hafa vitað um hætturnar í Reynisfjöru Innlent Aserar og Armenar skrefi nær friði eftir sögulegan fund í Hvíta húsinu Erlent Amma ræsti neyðarhnapp við enn eina árás dóttur sinnar Innlent Geimfari Apollo 13 látinn Erlent Flokkarnir dæla milljónum í áróður á Meta Innlent Féll fjóra metra í vinnuslysi í Kópavogi Innlent Fleiri fréttir Samdráttur og vítahringur í boði stjórnvalda Ekki stafi lengur tilvistarógn af Hamasliðum Lést eftir skyndileg veikindi við klettastökk Segjast ekkert hafa vitað um hætturnar í Reynisfjöru Féll fjóra metra í vinnuslysi í Kópavogi Ómeðvitaðir ferðamenn í Reynisfjöru, síbökuð hjón og tölvuspil fram á nótt Enginn árangur af „veiða og sleppa“ aðferðinni Flokkarnir dæla milljónum í áróður á Meta Hræðast að fleiri en einn fari í sjóinn Átökin „hvorki vegna né þrátt fyrir“ áfengissöluna Heitavatnslaust í Laugardal Lést við flúðasiglingar í Vestari-Jökulsá Langflestir telja sig búa á góðum stað fyrir samkynhneigða Áttu ekki von á neinu veseni og viðbúnaður eftir því Amma ræsti neyðarhnapp við enn eina árás dóttur sinnar Maður féll í Vestari-Jökulsá Fangar í einangrun vegna sama máls noti ekki sama útisvæði Hundarnir þegar aflífaðir en ákvörðun um lógun ólögmæt Samskipti fanga í einangrun, tapsárir Danir og drottning Gleðigöngunnar Allir fundir við ESB „fyrst og fremst“ hagsmunagæsla Telja að lífvörður myndi aðeins gera ferðamenn kærulausari Esjan snjólaus og það óvenju snemma Íslendingurinn í Grikklandi laus úr haldi Dvalarleyfi langtum dýrara í hinum Norðurlöndunum Lögreglurannsókn á banaslysi í Brúará „svo til“ lokið Nauðsynlegt að fólk fái úrræði til að vernda sig frá djúpfölsunum Enginn handtekinn eftir hópslagsmálin Skjálfti fannst á höfuðborgarsvæðinu Finna áhugann dvína á meðan vinir berjast og deyja á vígvellinum „Það fer enginn lífvörður út í“ Sjá meira