Byggingum frestað á Austurlandi 22. júní 2005 00:01
Fólksflutningar til Austurlands hafa gengið hægar en búist var við og hafa verktakar frestað íbúðabyggingum. Talsmenn Alcoa eru þó sannfærðir um að ekki þurfi að leita út fyrir landsteinana til að manna störf í álverinu. Byggingarverktakar brettu upp ermar þegar ákvörðun var tekin um smíði álvers og hófu að byggja upp heilu einbýlishúsahverfin á Reyðarfirði og einnig háhýsahverfi. Menn gera ráð fyrir að íbúafjöldinn í bænum muni tvöfaldast, fara úr 700 manns í 1400-1500. Fólkið hefur hins vegar streymt að hægar en gert var ráð fyrir. Verktakar hafa nú hægt á framkvæmdum. Sala íbúða hefur reynst minni en búist var við, þannig hafa Íslenskir aðalverktakar selt helmingi færri íbúðir á þessu ári en þeir áætluðu. Guðmundur Bjarnason, bæjarstjóri Fjarðabyggðar, segir að þetta muni breytast þegar nær dragi að verksmiðjan taki til starfa. Alcoa hafi líka verið að auglýsa eftir hámenntuðu fólki og mikil eftirspurn sé eftir þeim störfum, öfugt við það sem búist var við. Þetta staðfestir Hrönn Pétursdóttir, upplýsingafulltrúi álfélagsins, og kveðst búast við að fá allt það starfsfólk sem þörf verði á. Það er þó ljóst að stór hluti starfsmanna við smíði álversins verða útlendingar og líklega meirihlutinn Pólverjar að sögn Björns S. Lárussonar, samskiptafulltrúa Bechtels-HRV. Hann segist vonast eftir því að við hámark framkvæmdanna verði þó allt að 20% starfsmannanna Íslendingar. Menn telja þó ekki að álverið verði að stórum hluta mannað útlendingum eftir að rekstur hefst, heldur þvert á móti. Hrönn kveðst eiga von á að fá Íslendinga í öll störfin. Steinþór Þórðarson er meðal þeirra sem eru að flytja til baka. Hann er fæddur og uppalinn í Neskaupstað, flutti suður fyrir 20 árum, en réð sig fyrr á árinu til Alcoa sem fræðslustjóri. Hann segist þegar sjá skýr merki þess að brottfluttir Austfirðingar séu að flytja til baka, þarna sé t.a.m. mun meira af hans gömlu félögum en fyrir 6-8 árum.
Fréttir Innlent Mest lesið Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Heiða í veikindaleyfi Innlent Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Innlent Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Innlent Fleiri fréttir Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Sjá meira