Forsætisráðuneytið mest 21. júní 2005 00:01 MYND/NFS
Frá því 1998 hefur forsætisráðuneytið fengið hlutfallslega hæsta fjárveitingu í aukafjárlögum miðað við önnur ráðuneyti. Að meðaltali er forsætisráðuneytinu úthlutað tuttugu prósentum hærri upphæð í aukafjárlögum en gert er ráð fyrir í fjárlögunum sjálfum. Að meðaltali fengu ráðuneytin öll á þessu tímabili tæplega sjö prósenta fjárlagaauka og er því hlutfall forsætisráðuneytisins langt umfram meðaltal. Ef fjármálaráðuneytið er ekki meðtalið, vegna þess að óreglulegir liðir á borð við lífeyrisskuldbindingar og vaxtagjöld koma þar inn í aukafjárlög, fær utanríkisráðuneytið hlutfallslega næsthæstu upphæðina úr aukafjárlögum, eða tæp tíu prósent að meðaltali. Eitt ráðuneyti, sjávarútvegsráðuneyti, greiðir að jafnaði til baka í ríkissjóð í aukafjárlögum miðað við fjárlög, upphæð sem er um 0,3 prósent af fjárlögum ráðuneytisins. Fjárveitingar til sjávarútvegsráðuneytisins eru því að jafnaði ofreiknaðar miðað við aukafjárlög. Sjávarútvegsráðuneytið fer hins vegar að meðaltali 1,5 prósent fram úr aukafjárlögum á ríkisreikningi. Forsætisráðuneytið fer hins vegar hvað minnst fram úr aukafjárlögum þegar litið er til ríkisreiknings, eða um 0,6 prósent. Það ráðuneyti sem fór að jafnaði mest fram úr aukafjárlögum á tímabilinu, ef fjármálaráðuneytið er undanskilið af sömu ástæðum og áður, er iðnaðarráðuneytið, sem fer rúm átta prósent fram úr fjáraukalögum að jafnaði. Það er um fjórum prósentum hærra en viðmiðunarmark fjármálaráðuneytisins, en samkvæmt reglugerð um framkvæmd fjárlaga ber ráðuneytum að bregðast við ef útgjöld verða meiri en fjögur prósent umfram heimildir. Samgönguráðuneyti og umhverfisráðuneyti voru einu ráðuneytin sem voru að jafnaði undir fjárheimildum á tímabilinu en að meðaltali fóru ráðuneytin 3,1 prósent fram úr fjárheimildum á ári.
Fréttir Innlent Stj.mál Mest lesið Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Heiða í veikindaleyfi Innlent Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Innlent Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Innlent Fleiri fréttir Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Sjá meira