Gerum mistök eins og leikmenn 16. júní 2005 00:01
Hjörtur Hjartarson, framherji Skagamanna, gagnrýndi Gylfa Orrason knattspyrnudómara harðlega eftir leik sem hann dæmdi gegn Keflvíkingum í fyrrakvöld og gaf í skyn að Gylfi væri ekki í líkamlegu formi til þess að dæma leik í Landsbankadeildinni. „Þessi ummæli Hjartar koma mér nú nokkuð á óvart, því ég hef alltaf talið hann prúðan pilt,“ sagði Gylfi undrandi. Gylfi fékk slökustu einkunn sem gefin hefur verið í sumar fyrir dómgæsluna í leik ÍA og Keflavíkur. „Ég get alveg viðurkennt að ég gerði mistök í leiknum, þegar Hjörtur sleppur í gegn. Þá hefði ég átt að beita hagnaðarreglunni í stað þess að grípa inn í leikinn vegna brots, enda viðurkenndi ég það strax. Það er nú einu sinni þannig að dómarar gera mistök eins og leikmenn. En Skagamenn gengu mjög langt í mótmælum sínum í leiknum og ég tel mig hafa sýnt þeim mikið umburðarlyndi.“ Gylfi sagðist líka alveg geta hugsað sér að vera í betra formi. „Menn vita af því að ég fór í augnaðgerð í vor og gat ekki hreyft mig í heilan mánuð. Það kom að sjálfsögðu niður á forminu, en ég hef staðist þær kröfur sem gerðar eru og tel mig geta dæmt leiki í Landsbankadeildinni, annars myndi ég ekki gera það.“ Gunnlaugur Jónsson, fyrirliði Skagamanna, tók undir það með Hirti að Gylfi hafi ekki virkað í góðu líkamlegu formi. „Þetta var fyrsti leikur Gylfa eftir svolítið hlé, og því kannski eðlilegt að hann sé ekki í sínu besta formi. En mér fannst það sjást á þessum leik að hann var að dæma í fyrsta skipti í svolítið langan tíma. Dómarar geta alveg dottið úr formi eins og leikmenn.“
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Ingvar á leið í lyfjameðferð við illkynja krabbameini Íslenski boltinn Uppgjör: Haukar - Njarðvík 77-69 | Haukar lifa Körfubolti Strákarnir læri af biturri reynslu Arnars með Davíð Oddssyni í Japan Fótbolti Fylkir - FH 5-0 | Heimir pakkaði gömlum lærisveinum saman með Mána fremstan í flokki Íslenski boltinn „FH er bara á sinni vegferð“ Íslenski boltinn Stuðningsmaður Grindavíkur í bann fyrir bjórdósakast Körfubolti „Þetta hliðarspor mun ekki breyta þeirri vegferð sem ég er á“ Íslenski boltinn Kane sleppur með sekt og spilar á morgun Körfubolti Kæra komin á borð KKÍ vegna Kane Körfubolti Trúir ekki öðru en að hann verði áfram Enski boltinn Fleiri fréttir Kane sleppur með sekt og spilar á morgun Skilaboð um forsetann fjarlægð úr stúkunni Amandine: Einvíginu er ekki lokið Uppgjör: Haukar - Njarðvík 77-69 | Haukar lifa Sindri upp í úrvalsdeild í fyrsta sinn Óstöðvandi Sinner sló met Djokovic Tryggvi átti stórleik í sigri gegn toppliðinu „Hrikalegur dagur“ hjá McIlroy sem fékk fjóra skolla í röð „Ég tek fulla ábyrgð“ Refsað fyrir að mæta mínútu of seint á PGA meistaramótið „FH er bara á sinni vegferð“ Ingvar á leið í lyfjameðferð við illkynja krabbameini Elías bikarmeistari í Danmörku Úrslitaleiknum gæti verið frestað vegna njósnamálsins Ægir sló KA út og bikarmeistararnir flengdir Glódís bikarmeistari annað árið í röð Fertugur Young hættur: „Hvílíkur ferill!“ Fylkir - FH 5-0 | Heimir pakkaði gömlum lærisveinum saman með Mána fremstan í flokki Trúir ekki öðru en að hann verði áfram Hreinn úrslitaleikur um sæti í Bónus-deildinni McIlroy klár þrátt fyrir sársauka „Svo lærir maður á þetta og byrjar að blómstra í lífinu og golfinu“ Stuðningsmaður Grindavíkur í bann fyrir bjórdósakast Lárus hættur í Þorlákshöfn Benóný stýrði fögnuðinum Strákarnir læri af biturri reynslu Arnars með Davíð Oddssyni í Japan Stefnir á að slá heimsmetið aftur í september Sjáðu Foden stela senunni í sigri City Dagskráin í dag: Njarðvík getur tryggt titilinn og PGA meistaramótið hefst „Eins og súpa sem vantar salt og pipar“ Sjá meira
Fylkir - FH 5-0 | Heimir pakkaði gömlum lærisveinum saman með Mána fremstan í flokki Íslenski boltinn
Fylkir - FH 5-0 | Heimir pakkaði gömlum lærisveinum saman með Mána fremstan í flokki Íslenski boltinn