Vonandi ekki síðasti leikurinn 8. júní 2005 00:01 „
Ég var búinn að plana það að skora tíunda landsliðsmarkið fyrir löngu, svo maður verður að standa við stóru orðin. Ég er mjög ánægður með mitt framlag hérna í dag. Ég næ að skora mark og leggja önnur tvö, svo að ég vona að ég sé ekki að spila minn síðasta landsleik. Ég hefði líka viljað sjá skotið mitt sem fór í slána fara inn. Eiður sagði mér að það hefði munað nokkrum sentimetrum, en svona er boltinn,“ sagði Tryggvi Guðmundsson sem varð í gær tíundi leikmaðurinn frá upphafi sem skorar 10 A-landsliðsmörk. Tryggvi skoraði fyrsta markið sitt í fyrsta landsleiknum sínum gegn Færeyjum 27. júlí 1997 og það tíunda í sínum 35. landsleik á Laugardalsvellinum í gær. Það hafa aðeins þrír leikmenn verið fljótari að skora tíunda markið sitt, Ríkharður Jónsson náði því í 14. leiknum, Eiður Smári Guðjohnsen í þeim þrítugasta og Ríkharður Daðason skoraði sitt 10. mark í sínum 32. landsleik. Tryggvi hefur skorað fimm mörk í fyrstu fjórum leikjum Landsbankadeildarinnar og þessi mikli markaskorari nýtti tækifærið í landsliðinu vel í gær en hann skilaði, auk marks og tveggja stoðsendinga, fyrirliðastöðunni síðustu tíu mínútur leiksins. „Maður heyrir raddirnar í stúkunni þegar fólk er orðið pirrað á því hvað okkur gengur illa að brjóta niður þessa 6-3-1 vörn hjá þeim sem er auðvitað mjög erfið við að eiga. Það er bara þolinmæðisvinna að brjóta svona vörn á bak aftur og hún bíður ekki upp á neina samba-knattspyrnu, en við náðum að setja fjögur mörk á þá og klára þetta,“ segir Tryggvi sem skoraði þarna í þriðja landsleiknum í röð gegn Möltubúum sem ættu að vera farnir að kannast vel við kappann.
Íslenski boltinn Mest lesið „Þetta úrslitaeinvígi braut mig“ Handbolti Kane sektaður en ekki settur í leikbann Körfubolti Sjáðu Glódísi taka við bikarnum eftir sögulegan sigur Fótbolti „Þú ætlar bara í alvörunni að spyrja mig að þessu núna?“ Fótbolti „Fyrir þjálfaranum er ég fjórði besti framherjinn“ Fótbolti Ingvar á leið í lyfjameðferð við illkynja krabbameini Íslenski boltinn Heskey yngri tryggði City titil gegn United Enski boltinn Sindri upp í úrvalsdeild í fyrsta sinn Körfubolti Scheffler aldrei áður verið í toppsætinu eftir fyrsta hring Sport Skilaboð um forsetann fjarlægð úr stúkunni Fótbolti Fleiri fréttir „Vaxandi meinsemd í íslensku samfélagi“ FIFA stefni öryggi leikmanna í hættu á HM Búist við því að Carrick skrifi undir tveggja ára samning um helgina „Þú ætlar bara í alvörunni að spyrja mig að þessu núna?“ Heskey yngri tryggði City titil gegn United „Þetta úrslitaeinvígi braut mig“ Mitoma missir af HM og leiknum gegn Íslandi „Fyrir þjálfaranum er ég fjórði besti framherjinn“ Scheffler aldrei áður verið í toppsætinu eftir fyrsta hring Sjáðu Glódísi taka við bikarnum eftir sögulegan sigur Dagskráin í dag: Grindavík getur tryggt titilinn á heimavelli Kane sektaður en ekki settur í leikbann Skilaboð um forsetann fjarlægð úr stúkunni Amandine: Einvíginu er ekki lokið Uppgjör: Haukar - Njarðvík 77-69 | Haukar lifa Sindri upp í úrvalsdeild í fyrsta sinn Óstöðvandi Sinner sló met Djokovic Tryggvi átti stórleik í sigri gegn toppliðinu „Hrikalegur dagur“ hjá McIlroy sem fékk fjóra skolla í röð „Ég tek fulla ábyrgð“ Refsað fyrir að mæta mínútu of seint á PGA meistaramótið „FH er bara á sinni vegferð“ Ingvar á leið í lyfjameðferð við illkynja krabbameini Elías bikarmeistari í Danmörku Úrslitaleiknum gæti verið frestað vegna njósnamálsins Ægir sló KA út og bikarmeistararnir flengdir Glódís bikarmeistari annað árið í röð Fertugur Young hættur: „Hvílíkur ferill!“ Fylkir - FH 5-0 | Heimir pakkaði gömlum lærisveinum saman með Mána fremstan í flokki Trúir ekki öðru en að hann verði áfram Sjá meira