Loksins þrjú stig í húsi 8. júní 2005 00:01
Íslenska landsliðið í knattspyrnu bjargaði því sem bjargað varð eftir bagalega niðurstöðu gegn Ungverjum um helgina. Íslendingar skoruðu fjögur góð mörk gegn Maltverjum og juku sjálfstraustið aðeins fyrir lokasprettinn. Eftir að öll íslenska varnarlínan var þurrkuð út í leiknum gegn Ungverjum á laugardag var kominn nýr grunnur í íslenska liðið. Auðun Helgason var kallaður í landsliðið og settur í byrjunarliðið og var í vörninni ásamt Stefáni, Arnari Þór og Grétari sem allir voru á miðjunni gegn Ungverjum. Eftir fremur rólega byrjun þar sem íslenska liðið er einfaldlega að þreifa fyrir sér virðist vörnin eilítið óstyrk en henni vex ásmegin eftir því sem líður á leikinn. En þessar fyrstu 25 mínútur voru erfiðar. Maltverjar pakka sex mönnum í vörn og aðrir þrír eru ekki langt undan. Og íslenska liðið virðist ráðþrota. Eini maðurinn sem virðist geta gert eitthvað er Eiður Smári Guðjohnsen sem reynir hvað hann getur að sækja boltann aftur og spila honum fram. Það gengur erfiðlega. En eftir fyrsta markið sem Gunnar Heiðar skorar eftir frábæra sendingu Tryggva virðist ísinn brotinn og restin kemur sjálfkrafa. Eiður skorar gott mark þar sem boltanum er fleytt í gegnum maltnesku vörnina og snertir aldrei jörðina fyrr en hann hefur sungið sitt lag í netmöskvanum. Íslendingar voru þó heppnir að fá ekki á sig mark skömmu áður en þeir skora sitt fyrsta er hinn skjóti Mifsud kemst fram hjá Árna Gauti í markinu eftir langt úthlaup hans. Stefán Gíslason stendur vaktina á línunni og Árni Gautur er fljótur aftur. Undir lok hálfleiksins bjargar svo Auðun Helgason stórkostlega er George Mallia er við það að setja boltann í autt mark Íslendinga eftir góða fyrirgjöf Mifsud. Síðari hálfleikur byrjar eins og sá fyrri. Rólegur og lítið að gerast. Þar til að Maltverjar skora að því er virðist fyrirvaralaust. Íslendingar vakna upp við vondan draum og hysja upp um sig brækurnar og klára leikinn. Eftir þriðja markið, sem Tryggvi Guðmundsson skorar eftir að hafa skotið tvisvar í tréverkið, er leiknum lokið. Íslendingar taka öll völd og eru óheppnir að skora aðeins eitt í viðbót. Það var gaman að sjá „minni spámenn" fá sitt tækifæri í íslenska landsliðinu og voru það þeir sem héldu leik íslenska liðsins á floti allt til lokamínútunnar. Varamennirnir áttu mjög fína innkomu og Veigar Páll átti frábæran lokakafla í leiknum. Vörnin stóð fyrir sínu og ánægjulegt að sjá að það sé hægt að sjóða saman ágæta vörn með ekki lengri fyrirvara. Það hefði þó sjálfsagt horft öðruvísi við ef andstæðingurinn hefði verið sterkari. Tryggvi átti frábæra innkomu í íslenska landsliðsins og naut sín til hins ítrasta. Það var unun að fylgjast með honum. En þegar öllu er á botninn hvolft anda allir eilítið léttar, þó sérstaklega landsliðsþjálfararnir og forráðamenn KSÍ. Þeim tókst að bjarga andliti íslenska boltans þó ekki sé nema um stundarsakir.
Íslenski boltinn Mest lesið Egyptaland - Ísland 27-30 | Tveggja sigra ferð til Kaíró Handbolti „Þú ætlar bara í alvörunni að spyrja mig að þessu núna?“ Fótbolti „Þetta úrslitaeinvígi braut mig“ Handbolti „Vaxandi meinsemd í íslensku samfélagi“ Handbolti Bikarinn í húsi og leikar að æsast: „Það eiga að vera læti“ Körfubolti Biðst afsökunar á „óafsakanlegri hegðun“ Golf Ingvar á leið í lyfjameðferð við illkynja krabbameini Íslenski boltinn Kane sektaður en ekki settur í leikbann Körfubolti Heskey yngri tryggði City titil gegn United Enski boltinn Sjáðu Glódísi taka við bikarnum eftir sögulegan sigur Fótbolti Fleiri fréttir Sýna puttann til stuðnings Kane Grindavík - Tindastóll | Geta orðið Íslandsmeistarar Aston Villa - Liverpool | Bæði lið geta tryggt Meistaradeildarsæti Diljá með fimm mörk á tveimur vikum Egyptaland - Ísland 27-30 | Tveggja sigra ferð til Kaíró Kolbeinn snýr aftur til Köben í tuttugasta bardagann Biðst afsökunar á „óafsakanlegri hegðun“ Segir NBA Europe vera frábært tækifæri fyrir körfubolta Dagur snýr heim úr atvinnumennsku Besta sætið: Þreföld öryggisgæsla í Grindavík Kalla eftir brottrekstri Southampton vegna njósnanna Venus verður sú elsta til að spila á Opna franska FIFA og Sádar í eina sæng „Stríðshetjur“ Íran lagðar af stað á HM „Við erum alltaf að gefa í“ Bikarinn í húsi og leikar að æsast: „Það eiga að vera læti“ „Vaxandi meinsemd í íslensku samfélagi“ FIFA stefni öryggi leikmanna í hættu á HM Búist við því að Carrick skrifi undir tveggja ára samning um helgina „Þú ætlar bara í alvörunni að spyrja mig að þessu núna?“ Heskey yngri tryggði City titil gegn United „Þetta úrslitaeinvígi braut mig“ Mitoma missir af HM og leiknum gegn Íslandi „Fyrir þjálfaranum er ég fjórði besti framherjinn“ Scheffler aldrei áður verið í toppsætinu eftir fyrsta hring Sjáðu Glódísi taka við bikarnum eftir sögulegan sigur Dagskráin í dag: Grindavík getur tryggt titilinn á heimavelli Kane sektaður en ekki settur í leikbann Skilaboð um forsetann fjarlægð úr stúkunni Amandine: Einvíginu er ekki lokið Sjá meira