Loks sigur hjá Íslandi 8. júní 2005 00:01
Íslenska landsliðið í knattspyrnu vann 4-1 sigur á Möltu í undankeppni HM en leiknum var að ljúka á Laugardalsvellinum. Gunnar Heiðar Þorvaldsson og Eiður Smári Guðjohnsen skoruðu mörk íslenska liðsins í fyrri hálfleik en Tryggvi Guðmundsson og Veigar Páll Gunnarsson bættu hinum mörkunum við í seinni hálfleik. Möltumenn náðu að minnka muninn í 2-1 á 59. mínútu með marki Brian Said. Gunnar Heiðar Þorvaldsson skoraði fyrsta markið með skalla úr markteig á 28. mínútu eftir fyrirgjöf Tryggva Guðmundssonar og lagði síðan upp það seinna fyrir Eið Smára Guðjohnsen. Þetta er fyrsti landsleikur Gunnars Heiðars í byrjunarliðinu og ekki slæm byrjun það. Möltubúar minnkuðu muninn á 59. mínútu. Það hafði dofnað mikið yfir íslenska liðinu. Árni Gautur hálfvarði langskot eftir aukaspyrnu og Brian Said fylgdi á eftir og skoraði í tómt markið úr markteignum. Þetta er 18. markið sem íslenska liðið fær á sig í undankeppninni. Tryggvi Guðmundsson átti skot af 40 metra færi sem hafnaði í þverslánni á 67. mínútu en hann átti áður skot í slána í leiknum. Tryggvi kom svo Íslandi í 3-1 þegar hann setti boltann inn í markið af stuttu færi á fjarstöng eftir fyrirgjöf Veigars Páls Gunnarssonar. Varnarmenn Möltu gleymdu Tryggva sem nýtti sér það vel að vera réttur maður á réttum stað. Tryggvi náði þar með að skora eitt mark og leggja upp tvö í þessum leik. Tryggvi launaði svo Veigari stoðsendinguna skömmu síðar í þriðja markinu með því að leggja upp fjórða markið Íslands sem Veigar Páll skoraði með viðstöðulausu skoti úr markteignum. Þetta er fyrsta mark Veigars Páls fyrir A-landsliðið. Malta situr eftir í botnsæti riðilsins með eitt stig en Ísland er með fjögur. Tryggvi Guðmundsson var maður leiksins, skoraði eitt mark og lagði upp tvö en hann átti auk þess skalla í stöng og skot í slá. Markið hans Eiðs Smára var hans fimmtánda fyrir íslenska landsliðið en aðeins Ríkharður Jónsson hefur nú skorað fleiri (17 mörk, 1947-1965). Eiður hefur þar af skorað fimm mörk í undankeppninni.
Íslenski boltinn Mest lesið „Þetta úrslitaeinvígi braut mig“ Handbolti „Þú ætlar bara í alvörunni að spyrja mig að þessu núna?“ Fótbolti „Vaxandi meinsemd í íslensku samfélagi“ Handbolti Kane sektaður en ekki settur í leikbann Körfubolti Sjáðu Glódísi taka við bikarnum eftir sögulegan sigur Fótbolti „Fyrir þjálfaranum er ég fjórði besti framherjinn“ Fótbolti Ingvar á leið í lyfjameðferð við illkynja krabbameini Íslenski boltinn Heskey yngri tryggði City titil gegn United Enski boltinn Sindri upp í úrvalsdeild í fyrsta sinn Körfubolti Scheffler aldrei áður verið í toppsætinu eftir fyrsta hring Sport Fleiri fréttir Bikarinn í húsi og leikar að æsast: „Það eiga að vera læti“ „Vaxandi meinsemd í íslensku samfélagi“ FIFA stefni öryggi leikmanna í hættu á HM Búist við því að Carrick skrifi undir tveggja ára samning um helgina „Þú ætlar bara í alvörunni að spyrja mig að þessu núna?“ Heskey yngri tryggði City titil gegn United „Þetta úrslitaeinvígi braut mig“ Mitoma missir af HM og leiknum gegn Íslandi „Fyrir þjálfaranum er ég fjórði besti framherjinn“ Scheffler aldrei áður verið í toppsætinu eftir fyrsta hring Sjáðu Glódísi taka við bikarnum eftir sögulegan sigur Dagskráin í dag: Grindavík getur tryggt titilinn á heimavelli Kane sektaður en ekki settur í leikbann Skilaboð um forsetann fjarlægð úr stúkunni Amandine: Einvíginu er ekki lokið Uppgjör: Haukar - Njarðvík 77-69 | Haukar lifa Sindri upp í úrvalsdeild í fyrsta sinn Óstöðvandi Sinner sló met Djokovic Tryggvi átti stórleik í sigri gegn toppliðinu „Hrikalegur dagur“ hjá McIlroy sem fékk fjóra skolla í röð „Ég tek fulla ábyrgð“ Refsað fyrir að mæta mínútu of seint á PGA meistaramótið „FH er bara á sinni vegferð“ Ingvar á leið í lyfjameðferð við illkynja krabbameini Elías bikarmeistari í Danmörku Úrslitaleiknum gæti verið frestað vegna njósnamálsins Ægir sló KA út og bikarmeistararnir flengdir Glódís bikarmeistari annað árið í röð Fertugur Young hættur: „Hvílíkur ferill!“ Fylkir - FH 5-0 | Heimir pakkaði gömlum lærisveinum saman með Mána fremstan í flokki Sjá meira