Erlent

Elgir valda vandræðum í Þrándheimi

Tveir elgir ollu nokkrum usla í morgunumferðinni í Þrándheimi í dag en svo virðist sem dýrin hafi villst inn í borgina. Samkvæmt Aftenposten fékk lögreglan í Þrándheimi fjölmargar tilkynningar frá fólki snemma í morgun um ferðir elganna tveggja á vegum sunnan miðbæjarins og munaði minnstu nokkrum sinnum að ekið yrði á þá. Þegar dýraeftirlistssveit var svo send á vettvang voru elgirnir hins vegar á bak og burt og hefur ekki spurst til þeirra síðan. Engan sakaði og ekkert farartæki skemmdist í þessari litlu bæjarferð elganna tveggja.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×