Sport

Fjórar nýjar til Keflavíkur

Nýliðar Keflavíkur í Landsbankadeild kvenna hafa fengið liðsstyrk frá Bandaríkjunum fyrir átökin í sumar að því er fram kemur á heimasíðu Keflavíkurliðsins. Um er að ræða fjórar stúlkur frá sama háskólanum, þær Donna Cheyne (27 ára) og Claire McCombe (23 ára) frá Skotlandi, Jessica Chipple (20 ára) frá Bandaríkjunum og Þóra Reyn Rögnvaldsdóttir (23 ára). Fyrsti leikur Keflavíkurstúlkna verður í kvöld gegn FH.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×