Nistelrooy er mættur aftur 17. apríl 2005 00:01 "
Allir sem að félaginu koma eru gríðarlega ánægðir fyrir hönd Nistelrooy. Ég missti aldrei trúna á hann," sagði Alex Ferguson, knattspyrnustjóri Manchester United, eftir að hafa horft upp á hollenska markahrókinn sinn skora tvö mörk í undanúrslitaleiknum gegn Newcastle í gær þar sem lokatölur urði 4-1, Man.Utd í vil. Nistelrooy hafði átt erfitt uppdráttar að undanförnu og ekki skorað mark í þeim sex leikjum sem hann hafði spilað síðan hann náði sér af meiðslunum sem öftruðu honum frá keppni í þrjá mánuði. Nistelrooy kom Man.Utd á blað í leiknum á 19. mínútu með sínu fyrsta marki frá því í nóvember á síðasta ári. "Þetta var týpískt mark fyrir hann. Hann þurfti engan kraft í skotið heldur lagði hann boltann í bláhornið. Enginn markvörður í heiminum hefði varið þetta skot," sagði Ferguson eftir leikinn en mark hollendingsins var einkar laglegt. "Við höfum saknað hans og nú vona ég bara að hann haldi áfram að skora mörk fyrir liðið. Okkar hefur vantað mörkin í síðustu leikjum og í okkar liði er enginn betri en Nistelrooy í því starfi," bætti Ferguson við. Ósigurinn fullkomnaði hörmulega viku fyrir Newcastle sem féll úr leik í Evrópukeppni félagsliða á fimmtudaginn. Það var í raun aldrei spurning um hvort liðið færi með sigur af hólmi í leiknum í gær og sáu þreyttir leikmenn Newcastle aldrei til sólar í leiknum. Enginn lék betur en Christiano Ronaldo, en hann lagði upp fyrstu tvö mörkin og skoraði síðan það fjórða. Man.Utd mætir Arsenal í úrslitaleiknum á Þúsaldarvellinum í Cardiff þann 21. maí nk. en Arsenal valtaði yfir Blackburn á laugardaginn. Roy Keane, fyrirliði Man.Utd, sagði það einstaklega góða tilfinningu að vera kominn í úrslitaleikinn. "Þeir áttu aldrei glætu í okkur. Við vissum að þeir voru þreyttir eftir Evrópuleikinn á fimmtudaginn og við ætluðum okkur alltaf að keyra á þá á mesta mögulega hraða. Það gekk upp og ef við spilum svona í úrslitaleiknum þá erum við á grænni grein," sagði Keane eftir leikinn.
Enski boltinn Íslenski boltinn Mest lesið Þjóðverjar busuðu fámennustu þjóð í sögu HM með rassskelli Fótbolti Ísak Bergmann trúlofaður Fótbolti „Þetta er eins og aftanákeyrsla“ Íslenski boltinn Uppgjörið: Keflavík-FH 1-2 | Fyrsti sigur FH-inga í sumar Fótbolti Uppgjör: Þór-ÍBV 1-4 | Eyjamenn með annan stórsigurinn í röð Fótbolti Forseti FIFA móðgaði Ítali Fótbolti Basile yfirgefur Stólana og semur við Álftanes Körfubolti Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Handbolti Klopp segir þá halda fótboltanum í gíslingu Fótbolti Alisson Becker missti af leikjum Liverpool til að spara sig fyrir HM Enski boltinn Fleiri fréttir Tryggði Japan jafntefli með því að skalla boltann af höfði liðsfélaga og inn Íslenskt lið komið inn á heimsleikana í CrossFit „Með mikið samviskubit gagnvart eiginkonu minni og dóttur“ Hulda Clara fagnaði sigrinum með því að hoppa út í vatnið „Eitthvað þarf að breytast fyrir næsta leik“ „Bráðaaðgerð var ekki á bingóspjaldinu mínu fyrir 2026“ „Sá að hann hleypti mér á hægri löppina og ég hikaði ekki við að skjóta“ Klopp segir þá halda fótboltanum í gíslingu „Smá þolinmæði sem þarf“ Real Madrid keypti Cucurella af Chelsea Þjóðverjar busuðu fámennustu þjóð í sögu HM með rassskelli Uppgjörið: Keflavík-FH 1-2 | Fyrsti sigur FH-inga í sumar Japanir mættir til að vinna heimsmeistaramótið, ekki til að skemmta sér Basile yfirgefur Stólana og semur við Álftanes Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Leikmenn Portúgal bera Diogo Jota-armbönd á HM Uppgjör: Þór-ÍBV 1-4 | Eyjamenn með annan stórsigurinn í röð Ísak Bergmann trúlofaður Martin með mikilvæg stig í sigri Alba Berlin „Ég er þeim ævinlega þakklátur“ Náði loks sigri með Ferrari Magdeburg fékk bronsið Hulda Clara vann í Tékklandi Potter spurður hvort það hafi hjálpað að vera ekki danskur Vilja sjá betri frammistöðu frá Breiðablik Fær laun greidd en fær ekki að dæma Maður dagsins: Innflytjandi sem fór snemma til Bayern Mörkin úr Bestu deildinni Fyrsti sigur á heimsmeistaramóti síðan 1990 Óvæntur varnarsigur Sjá meira