„Bráðaaðgerð var ekki á bingóspjaldinu mínu fyrir 2026“ Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 14. júní 2026 20:32 Molly Caudery var að undirbúa sig fyrir EM á heimavelli en endaði í staðinn á skurðarborðinu. Getty/Pier Marco Tacca Breski stangastökkvarinn Molly Caudery missir af restinni af keppnistímabilinu og Evrópumótinu á heimavelli eftir aðgerð á baki í síðustu viku.
Þessu segir hin 26 ára gamla Caudery sjálf frá á Instagram. Breska stjarnan skrifar að bakverkir hafi skyndilega versnað, sem gerði aðgerð nauðsynlega til að koma í veg fyrir frekari meiðsli. „Bráðaaðgerð á baki var ekki á bingóspjaldinu mínu fyrir 2026,“ skrifaði Molly Caudery. View this post on Instagram A post shared by BBC SPORT (@bbcsport) „Og þar með er keppnistímabilinu mínu lokið. Það er alveg hræðilegt að þurfa að skrifa þetta, að missa af enn einu ári af stórmótum og heimaleikjum,“ skrifaði Caudery. „Til að útskýra þá fékk ég slæmt bakslag í síðustu viku sem versnaði hratt og það þurfti að grípa strax til skurðaðgerðar til að koma í veg fyrir frekari skaða,“ skrifaði Caudery. Caudery er tvöfaldur heimsmeistari innanhúss frá 2024 og 2026. Hún vann einnig brons á Evrópumótinu 2024. Caudery hefur stokkið hæst allra Evrópubúa á árinu, 4,85 metra, og var því einn sigurstranglegasti keppandinn um gullið á EM í Birmingham í ágúst. Þetta er í annað sinn í röð sem stangastökkvarinn missir af stórmóti. Árið 2025 komst hún aldrei af stað í keppni sinni á HM eftir að hafa meiðst á ökkla í upphitun. „Aðgerðin heppnaðist vel og batinn hefst í dag. Ég hélt í alvöru að 2026 yrði árið mitt eftir vonbrigðin í París og Tókýó og allt þar á milli, en ég vildi bara bæta öðrum kafla við sjálfsævisöguna áður en endurkoman hefst,“ skrifaði Caudery. View this post on Instagram A post shared by Molly Caudery (@molly_caudery)
Frjálsar íþróttir Mest lesið Sláandi ofbeldi knattspyrnukonu í miðjum leik Fótbolti Aron Einar spilar ekki fleiri leiki með Þór í sumar Íslenski boltinn Sonur Kristófers og Guðrúnar er bæði Acox og Guðjohnsen Körfubolti Trump kallar LeBron James kynþáttahatara Körfubolti Bætti vallarmetið og kom sér upp í annað sætið Golf Þjálfari heimsmeistaranna segir hegðun Argentínu óþolandi og óásættanlega Fótbolti Björgvin Karl í fjórða sæti heimsleikanna Sport Varane bannar ungum leikmönnum að skalla Fótbolti Guðmundur Oddsson látinn Golf Bergrós, BKG og íslenska liðið á þriðja degi heimsleikanna Sport Fleiri fréttir Kona hleypur yfir Alpana á mettíma Mirza Bulic yfirgefur Keflavík og semur við Grindavík Aron Einar spilar ekki fleiri leiki með Þór í sumar Barcelona mun styðja fjölskyldu verkamanns sem lést á Nývangi Sonur Kristófers og Guðrúnar er bæði Acox og Guðjohnsen Fjórir táningar í fyrsta byrjunarliði Iraola hjá Liverpool Sláandi ofbeldi knattspyrnukonu í miðjum leik Arsenal sagt hafa áhuga á því að kaupa Vinícius Júnior Í skýjunum eftir sögulegan sigur: „Þetta var dýrðardagur“ Var strax sannfærð: „Bjóst eiginlega við að þetta myndi vera svona“ Uppgjörið: Fram - Grindavík/Njarðvík 0-3 | Í bikarúrslit í fyrsta sinn Selja Japanann til Ipswich og kaupa gamla Valsarann í staðinn Hilmar Örn setti mótsmet og Jacques vann bæði gull og silfur Skotarnir staðfesta að Víkingur hafi keypt íslensku landsliðskonuna Bergrós, BKG og íslenska liðið á þriðja degi heimsleikanna Óvæntasta stjarna HM fann sér nýtt félag Vann Íslandsmeistaratitilinn á 0,02 sekúndum: „Sérstaklega skemmtilegt“ Fyrsti sigur ÍR-inga síðan á Þjóðhátíðardeginum Guðrún skoraði þegar Hammarby komst á topp deildarinnar Kristiansund komið í fallsæti eftir að Júlíus Már fékk rautt Varði Íslandsmeistaratitilinn en náði ekki að bæta metið Byrjar á ráspól eftir ótrúlegan lokahring Trump kallar LeBron James kynþáttahatara Lærisveinar Tinnu rétt misstu af úrslitum Fór snemma út af í jafntefli við nýliðana Sinner og Djokovic þurfa að draga sig úr keppni Hljóp á hraðasta tíma ársins Varane bannar ungum leikmönnum að skalla Sjáðu markaveislu gærdagsins í Víkinni Bætti vallarmetið og kom sér upp í annað sætið Sjá meira