Valgeir væntanlegur 4. apríl 2005 00:01
Valgeir Guðjónsson efnir til tónleika í Hveragerðiskirkju, föstudaginn 8. apríl. Tónleikar Valgeirs eru liður í tónleikaröðinni "Kvöld í Hveró" sem Norsk-Íslenska Skjallbandalagið Inc.stendur fyrir. Valgeir Guðjónsson er orðinn órjúfanlegur hluti af íslenskri tónlistarsögu; hugverk hans lifa góðu lífi á meðal þjóðarinnar. Pilturinn greip í gítar móður sinnar einhverntíma á tíunda árinu og hefur haft gítar í seilingarfjarlægð síðan. Bekkjarbróðinn Þórður Árnason var á sama rólinu og fyrstu árin einbeittu þeir félagar sér að lögum með Shadowskvartettinum breska. Þegar Bítlarnir byrjuðu að hljóma var ekki aftur snúið og fyrsta formlega hljómsveitin, Komplex, leit dagsins ljós í Réttarholtsskólanum. Þar var forsöngvari snaggaralegur eldri piltur, Ágúst Atlason sem síðar varð þekktur sem Gústi í Ríó. Á bassa lék Gylfi Kristinsson, síðar kennari í Árnessýslu og íbúi í Hveragerði. Menntaskólinn í Hamrahlíð gat af sér tvær hljómsveitir sem Valgeir hefur löngum verið kenndur við, Stuðmenn og Spilverk þjóðanna. Hann starfaði með báðum sveitum um árabil en gekk um síðir á eigin vegum, einn og óstuddur og hefur haft þann háttinn á allt frá árinu 1988. Skráð tónverk Valgeirs eru vel á fimmta hundraðið, á hljómplötum, í kvikmyndum, sjónvarpsþáttum og í leikhúsi. Hann hefur það að meginreglu að leika aldrei öll verk sín í einu. Tvær systur, Hildur og Rakel Magnúsdætur, munu hita upp fyrir Valgeir. Hildur tók þátt í Idol Stjörnuleit í vetur og þótti standa sig prýðilega. Þær systur búa báðar í Hveragerði og hafa sungið saman í nokkurn tíma. Jógvan Hansen spilar undir á gítar. Miðaverð er 1500 krónur og hefjast tónleikarnir kl. 21.00 Yfirlýst markmið Kvölds í Hveró er að auka fjölbreytni í menningu á svæðinu, opna augu almennings fyrir þeim möguleika að íslensk popptónlist eigi ekki síður heima í kirkju en klassíkin og gefa ungu og hæfileikaríku tónlistarfólki af Suðurlandi tækifæri til að hita upp fyrir þá listamenn sem fram koma. Hljómburður í Hveragerðiskirkju þykir einstaklega góður. Aðstandendur Kvölds í Hveró er Norsk-Íslenska Skjallbandalagið Inc. sem í eru Ásgerður Eyþórsdóttir, Monica Haug og Ólöf Ingibergsdóttir. Frekari upplýsingar í síma 692 8531. Sala á miðum fer fram í Hljóðhúsinu á Selfossi. Þeir listamenn sem fram munu koma eru: 08. aprílValgeir GuðjónssonHveragerðiskirkjaklukkan 21:0022. aprílFabúlaHveragerðiskirkjaklukkan 21:0006. maíKK og EllenHveragerðiskirkjaklukkan 21:0020. maíEyfi og StefánSelfosskirkjaklukkan 21:0003. júníHljómsveitin HjálmarHveragerðiskirkjaklukkan 21:00Hildur Magnúsdóttir og systir hennar hita upp fyrir Valgeir. hildur gat sér gott orð fyrir þátttöku í Idol í vetur.MYND/Vísir
Menning Mest lesið Leikkonan Hayden Panettiere er látin Lífið Barnalán hjá Brynju Dan Lífið Nicole er fyrir norðan Lífið Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Lífið Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Lífið Bestu hlutverk Hayden Panettiere Bíó og sjónvarp Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Lífið Auðunn tilkynnir nýja kærustu Lífið Þórdís Elva er gengin út Lífið Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Lífið Fleiri fréttir Hvað veistu um... frjálsar íþróttir? Galvaskt gelludjamm hjá Guggu og guggunum Nicole er fyrir norðan Egill Heiðar og Kittý selja Garðabæjarslotið Helstu samsæriskenningarnar um Evrópusambandið „Ein miðaldra kona að tala um að hún hefði viljað mæta“ Barnalán hjá Brynju Dan Herra og frú Crivello hamingjusöm hjón Svana á tímamótum og selur slotið Auðunn tilkynnir nýja kærustu Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Leikkonan Hayden Panettiere er látin Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Þórdís Elva er gengin út Efna til söfnunar í minningu Hennings Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Hunter Schafer alsæl eftir Íslandsför Krakkatía vikunnar: Tinni, flekar og stór augu Þórdís Kolbrún fékk hlýjar móttökur Adam Driver mættur í Marvel-heiminn Fréttatía vikunnar: Björk, Usher og peningaþvætti Barbie-framhald í uppnámi vegna launakrafa Robbie Williams einhverfur Hálfsextugur Hamm að verða pabbi í fyrsta sinn Hjartnæm athöfn þegar Gunnar Þórðarson var jarðsunginn Dorrit sendir rabbínanum tóninn Berskjölduð og óttaslegin eftir skilnaðinn og framtíðin óráðin Jóhanna Guðrún ólétt Útför Gunnars Þórðarsonar Sjá meira